Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › Klifur í sumar. Vídjó
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
25. October, 2009 at 23:57 #474142205892189Member
Jæja, aðeins að dunda mér í dag að setja í eitt vídjó.
Fínt að koma fiðring í fólk á þessum frábæru tímum með nóg af rigningu.
youtube.com/watch?v=x5738MYhCOg
http://www.youtube.com/watch?v=x5738MYhCOg
Endilega kíkið á þetta meistaraverk.
Ási
26. October, 2009 at 08:21 #54598gulliParticipantSiggi klifrar svo rólega og yfirvegað að maður fær engan fiðring heldur finnur bara fyrir syfju. Það var aðeins fyrir goluna og að maður sá bolinn aðeins blakta að ég steinsofnaði ekki yfir þessu.
En hvernig er með þennan ís. Í fyrra var maður búinn að komast eina ferð í Múlafjall á þessum tíma …
26. October, 2009 at 09:04 #54599Siggi TommiParticipantJá, þetta er hresst, eða alla vega áhugavert.
Vissulega rétt hjá Gulla að það er ekki verið að bjóða upp á nein stökk og læti þarna en gaman öngvu að síður.
Góð leið…Þessi rigningarsuddi mætti klárlega alveg fara að hætta fljótlega.
26. October, 2009 at 10:34 #54600Anna GudbjortMemberRok á Hnappó! Why I never..
Töff myndband. Falleg afgreiðsla á ‘yfirhanginu’.
þetta minnir mig á það að mig langar sjúklega að sjá Progression! Félagi minn sagðist hafa farið á gráta yfir henni, haha.
26. October, 2009 at 11:54 #54601Páll SveinssonParticipantMér hlínar bara um hjartað við að sjá þessa flottu leið fá svona fallega uppáferð.
kv.
Palli26. October, 2009 at 11:55 #54602SissiModeratorÉg er nú ekki sammála Gulla, horfði á allt myndbandið og hafði gaman af. Það er alveg eitt semi stökk þarna.
Progression var sýnd í KH á föstudagskvöldið og boðið upp á afbragðsgott popp og kók. Ótrúlega flott mynd, alveg sikk. Þar tekur Tommy Caldwell feitan dýnó einhverstaðar í kringum 10 spönn á Kafteininum, þannig að Gulli myndi líklega ekki sofna yfir þeirri mynd.
Sissi
26. October, 2009 at 13:16 #54603gulliParticipantAhh, klikkaði á broskallinum … ekki illa meint, bara reyna stríða Sigga aðeins … en það er ekkert nýtt að ég og Sissi séum ekki sammála
26. October, 2009 at 13:43 #54604SissiModeratorÞað er bara ekki rétt Gulli.
26. October, 2009 at 13:43 #54605Anna GudbjortMemberOhh ertu ekki að grínast! Jæja, þetta fæ ég fyrir að skrópa í KH. Er hægt að kaupa myndina í sjoppunni?
Djöfulsins.
26. October, 2009 at 15:11 #54606SkabbiParticipantAnna Guðbjört Sveinsdóttir upplýsti:
Quote:Ohh ertu ekki að grínast! Jæja, þetta fæ ég fyrir að skrópa í KH. Er hægt að kaupa myndina í sjoppunni?Djöfulsins.
Var það ekki, skrópað í Klifurhúsið til að hanga í sjoppunni. Er það svona sem afreksmenn verða til?
Herra rigningarmánudagur….
31. October, 2009 at 11:12 #54629HrappurMemberJá þetta er flott leið, einhvernveginn tókst mér að klifra hana aldrei né sjá hana nokkurtíman klifraða á öllum mínum Hnappavalla árum. Undarleg yfirsjón því leiðin virðist standa undir nafni!
kv. Hrappur
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.