Klifur á Krít

Home Forums Umræður Klettaklifur Klifur á Krít

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45755
    2506663659
    Participant

    Er einhver hérna sem hefur klifrað á Krít. Ef svo er væri gott að fá upplýsingar um það.

    kv,
    Guðjón

    #49956
    0804743699
    Member

    Í raun er ekki mikið um gott klifur á Krít, ekkert í líkingu við Kalymnos í það minnsta.
    Ef þú ert að fara í pakkaferð er lílegt að þú farir til Chania. Mjög lítið er um klifur á þeim slóðum en þó eitthvað aðeins í giljum austur af bænum (Í áttina til Iraklion nálægt Rethymno)
    Besta klifrið er á suðurströndinni við Líbíuhafið, ágætis klifur er innig í kringum Malia. Töluvert er um skemmtilegar alpínistaleiðir á miðhálendinu en þar er einnig að finna skemmtilegt klifursvæði sem er þó mikið tryggt með náttúrulegum tryggingum.
    Það er algjörlega nauðsynlegt að hafa bíl til umráða.
    Það eru í raun engar klifurbúðir á Krít og eini sénsinn til að finna local klifrara er á klifursvæðunum, á netinu eða í eina innanhúsklifurveggnum á eyjunni sem er í Iraklion í Universal Studios.
    Þokkalegur vefur er til um klifur á Krít: http://www.climbincrete.com.
    Ég á að eiga einhversstaðar topo en stend í flutningum og því djúpt á honum.
    Krít er furðuleg eyja, ofsalega frumstæð og falleg á suðurströndinni en frekar spillt í norðri.
    Mæli með að skreppa í köfun til dæmis hjá frönskum vinum mínum í http://www.staywet.gr í Agia Pelagia.
    Annars ef þetta á að vera klifurferðalag þá er Kalymnos málið, http://www.kalymnos-isl.gr .
    Vona að þetta hjálpi eitthvað…

    kv,
    Bárður Örn

    #49957
    Robbi
    Participant

    tjekkaðu á http://www.rockclimbing.com. fullt af upplýsingum um allan andskotan þar…meira að srgja um ísland.
    robbi

    #49958
    Hrappur
    Member

    http://www.climbincrete.com/content/category/9/102/49/

    er Þetta eithvað í áttina?

    KV. Hrappur

    #49959
    2707662939
    Member

    Hér á landi er staddur núna Jurgos nokkur sem er fjallaguide frá Krít, vinnur hjá ferðaskrifstofu sem býður göngu, fjalla, kajak og klifurferðir svo e-h sé nefnt. Hann er meðal annars hér til að skoða með ferðir frá Krít og hingað.
    Gæti komið honum í samband við þig Guðjón ef þú sendir mér símann þinn á jonas@utivera.is.
    Hann hefði ekkert nema gaman að því.

    Kveðja

    Jónas G.

    #49960
    2707662939
    Member

    Gleymdi notabene að segja að hann fer á mánudaginn (19 sept) svo þetta þyrfti að ganga hratt.

    Takk aftur

    Jónas G.

    #49961
    2506663659
    Participant

    Ég þakka góð svör hér að ofan. Kominn frá Krít án þess að klifra en kafaði þó eins og Bárður lagði til. Vika full stuttur tími til að vera túristi og fara að klifra. Sérstaklega þar sem ekkert klifursvæði var í grendinnni.
    Kalymnos hljómar svoldið spennandi Bárður. Hefur þú farið þangað? Væri gaman að heyra í þér ef svo er. Sendu mér endilega línu. gudjon_snaer@hotmail.com.

Viewing 7 posts - 1 through 7 (of 7 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.