Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › Klifur á Ítalíu
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
21. January, 2005 at 11:34 #455991908803629Participant
Ég er að fara til Ítalíu í vor og er að velta því fyrir mér að slá tvær flugur í einu höggi og komast í smá klifur í leiðinni.
Eru einhverjir reynsluboltar þarna sem hafa klifrað á Ítalíu? Ef svo er, einhverjar tillögur?
Ég hef bæði áhuga á að komast í sportklifur og innanhúsklifur – og þá vonandi komast í eitthvað stórt gym.
Ég er svo til nýbyrjaður í þessu sporti (tæpt ár síðan) þannig að ég er ekki að leita að einhverju rosalegu. Aðallega að spá í að kynnast nýju umhverfi og kannski komast í öðruvísi kletta.
Ausið úr viskubrunni ykkar
21. January, 2005 at 16:20 #493452005774349Member….án þess að hafa nokkurn tíma klifrað þar sjálf : )
Það er náttúrlega Arco við Garda vatnið. Það er víst risa kalksteinssvæði sem búið er að klifra í lengi, með leiðum af öllum gráðum. Kirsty og Elvar fóru þangað með stelpurnar sínar fyrir svona tveimur þremur árum og fannst frábært. Held að Maggý og fleiri skvísur hafi líka klifrað þar og Stebbi og Bjössi fyrir löngu.
Stebbi Steinar Smárason hefur klifrað í Dólómítunum. Ætli það sé ekki mest fjölspanna dót þar. Það er hægt að finna leiðir af öllum gráðum þar líka -Sarah vinkona mín klifraði létta fjölspannaleið þar síðasta haust. Kannski er of snemmt að fara þangað að vorlagi? Gæti verið hrun og vesen ef svæðið er nýkomið undan vetri.
Hálfdán þekkir svo svæði aðeins sunnar – og veit örugglega um klifurveggi í Róm.
21. January, 2005 at 17:21 #493462112774839MemberHæ hæ,
Ég hef aðeins klifrað innanhús í Róm.
Zeta Club
Via Casilina, 285
Roma, RM
Tel.06/21.70.80.74
Fax.
og svo
Club Lanciani
Via Pietralata, 135
Roma, RM
en það eru einhverjar stöðvar í flestum stóru borgunum og ekkert mál að finna þær.
Það er svo klifursvæði við Circeo, sem er natural reserve í klettum rétt við sjóinn, um klukkutíma frá borginni. Alveg þess virði að kíkja þar við, og ekki svo erfitt að komast ef þú ert að fara til Rómar, og alveg voðalega fallegt. Líka skemmtilegra en að hanga inni. Svo er geggjað að fara til Sardegniu og ekki dýrt ef þú ert að fara fyrri hluta sumars. Svo er náttulega rosa mikið á norður Ítalíu, m.a. við Garda eins og Hjalti sagði, en ég þekki það ekki.
Svo bendi ég á frábæra heimasíðu, http://www.planetmountain.com. Þar er líka hægt að koma með fyrirspurnir og þeir eru nokkuð góðir að svara manni.
Góða ferð!
Kv. Anna22. January, 2005 at 00:56 #49347HrappurMemberþað væri kanski betra ef þú segðir hvar á Ítalíu þú ætlar að vera. Fullt af svæðum einsog gefur að skilja.
23. January, 2005 at 20:22 #493481908803629ParticipantDagskráin er ennþá óskrifðuð en það er stefnt á flakk um mestan hluta landsins. Bókað mál að ég stoppa í Trieste, Flórens og Róm en er að horfa á að kíkja á fleiri staði í leiðinni, jafnvel niður til Napolí, getur ráðist á því hvar skemmtilegasta klifrið er. Þó að ferðin sé ekki hugsuð sem klifurferð, enda frúin ekki mikið í klifrinu, þá væri gaman að heimsækja einhverja flotta staði í leiðinni.
Þakka svörin, vonandi lumið þið á fleirum.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.