Hvernig er svo stemmingin fyrir Kirkjufelli um helgina?
Þetta eru tóm kósýheit fyrir ísalpara sem eru ekki lofthræddir, vel fixaðar morknar línur efst og svo er þetta marflatt að ofan, eða þannig.
Kannski best að ákveða á fim. kvöld hvort betra sé að fara á laugardegi eða sunnudegi veðurlega séð.
Skrapp þarna í vor, myndir fyrir áhugasama á:
http://www.climbing.is/lesa_frett.php?cat=2&id=149
Eins og vedur.is segir núna að þá er klárlega betra veður á sunnudaginn, en ég er kannski ekki sá eini sem hefur orðið vitni af því að 4-5 daga spá er ekki alltaf hárrétt hér á Íslandi.
Réttast að vera með hjálm, það getur runnið af stað grjót oþh glaðningar
kv. Gummi St.