Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Jólaskíðun?
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
15. December, 2011 at 18:17 #47597Steinn SigMember
Var að spá í þessa jólaskíðun, er einhver sem ætlar að skíða og hvert myndi fólk vilja fara.
15. December, 2011 at 18:20 #57197Orri PeturssonMemberdjöfull held ég að það væri gott að skíða á eftir þér
15. December, 2011 at 18:30 #57198SmáriParticipantmig langar að skíða, hef samt ekki hugmynd um hvernig aðstæður eru…
15. December, 2011 at 18:36 #57199Orri PeturssonMemberÉg veit ekki mikið um snjóalög en það er líklegt að það sé kominn einhver snjór í Heklu og Tindfjöll, kannski veit ekki
15. December, 2011 at 20:14 #572001509815499MemberDrífa sig bara norður strákar mínir. Hér á Akureyri dömpar niður og allt hvítt út um allt.
Ef þið eruð í veseni með konurnar þá er opið á Glerártorgi alla helgina16. December, 2011 at 11:39 #57212SmáriParticipantVið erum nokkrir sem höfum tekið af skarið með að negla skíðaferð á morgun. Förum austur þar sem meira hefur snjóað þar um slóðir, ekki ólíklegt að Eyjafjallajökull verði fyrir valinu. Til að ná þokkalegri birtu verður farið af stað frá select kl 7:30.
Minni þá sem ætla með að taka snjóflóðagræjur
Smári
16. December, 2011 at 12:57 #57213SkabbiParticipantGóður Smári!
Kemur þú í jólaglögg um kvöldið?
Skabbi
16. December, 2011 at 13:14 #57214SmáriParticipantKemst því miður ekki í glöggið, hef ekki mætt síðan ég tapaði í kálfakeppninni hér um árið það skyggði svo á sigurinn í stólakeppninni að ég hef ekki beðið þess bætur… nei annars hefði verið gaman að koma en verð bara fullur á Laugarvatni í staðin
16. December, 2011 at 13:32 #57215SmáriParticipant[attachment=360]katla.png[/attachment]
svona lítur katla út í dag, hlýtur að vera hægt að skíða eitthvað þar í kring16. December, 2011 at 17:34 #572190801667969MemberÞetta er orðið allsvakalegt ástand. Það þarf annaðhvort að fara í Bláfjöll eða á hæstu jökla landsins til að komast á skíði.
Kv. Árni Alf.
P.S. Og það er snjólaust í Ölpunum!
19. December, 2011 at 13:27 #572340909862369MemberEr ekkert væntanleg einhver hetjusaga (eða í það minnsta ferðasaga) frá jólaskíðuninni? Fóruð þið á Eyjafjallajökul? Hversu margir fóru? Hvernig var færið o.s.frv.
19. December, 2011 at 14:10 #57236SmáriParticipantEkki mikið um hetjuskap í jólaskíðuninni. fjórir mættu og stefnan var sett á Tindfjöll. Ferðin lofaði góðu því þrátt fyrir frekar lítinn snjó nar búið að skafa slatta í veginn og festum við bílinn nokkrum sinnum áður en ákvörðun var tekin um að ekki yrði ekið lengra og þrammað af stað. Við áttum s.s. von á að einhverjar línur væru skíðanlegar og dagurinn yrði hinn besti. Þegar við hins vegar komum upp á sléttuna neðan við flubbaskálann var svæðið nánast marautt fyrir utan nokkra skafla sem við þræddum á skíðunum. Þegar komið var að skálanum (flubba) var ákvörðun tekin um að skíða þar stutta brekku sem hafði safnað smá snjó í sig í stað þess að fara á Ými því mikil þoka var þar uppi. Dagurinn samanstóð s.s. af töluverðri göngu, smá skíðun í leiðinlegu færi og að ýta sér yfir sléttuna til baka því rennslið í snjónum var frekar lélegt. En ef maður lítur á björtu hliðarnar þá fékk maður fullt af frísku lofti og góða axlarvöðvaæfingu
Smári
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.