Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Jói bróðir Hómers
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
28. September, 2006 at 19:30 #45361SissiModerator
Var með Himma, Dabba og fleiri góðum mönnum að horfa á Jóa Simpson í morgun. Hann er helvíti flottur kallinn og skemmtilegur fyrirlestur.
Hans leið í lífinu hefur verið talsvert ólík þeirri sem Simon valdi, en hann átti einmitt góðan dag á fjöllum og í fjósi hér fyrir ca. 2 árum.
Átti nokkra fleyga mola, eins og;
“There are no points for dying. If you die you failed.”
“I don’t believe in famous last words. All I thougt was ‘OH SHIT’.”
“I was so glad when I got the X-ray and saw my leg was shattered. It would have been so embarrassing if they had said: ‘It’s only a sprain, Mr. Simpson'”
Himmi man kannski fleiri?
Ahhh, fokkings (alpa)klifur. Is it worth it?
Siz
29. September, 2006 at 16:13 #50666Stefán ÖrnParticipantJá þetta er alveg magnað. Jói kemur til landsins annan hvern dag og aldrei fá fjallamenn að hitta piltinn (nema þeir hafi bankatengslanet). Spurning um að breyta nafni Ísalp í Ísalp Group eða Ísalp Fjárfestingarbanki…..
29. September, 2006 at 17:28 #506672401754289MemberÞetta er vel þess virði Siz! Var að príla með vini hans Jóa í vor (fyrrum herbergisfélagi hans frá Cham) og hann vill meina að Jói er einn mesti hrakfallabálkur sögunnar! Ef það er eitt glerbrot á götunni þá dettur Jói á það og fær það helst í slagæð eða auga eða e-ð…hann getur alavega skrifað um það
Freon3. October, 2006 at 12:13 #506682906883379MemberJá.. Þetta var mjög góður fyrirlestur hjá kallinum. Hann nær að djóka svolítið með þetta..
3. October, 2006 at 12:21 #50669Björgvin HilmarssonParticipantVerð nú bara að vera sammála Steppó og segja að mér finnst það hálf glatað að maður frétti ekki einu sinni af því að kappinn sé á landinu. Samt er maður í voða fínum klúbbi eins og Ísalp. Var þetta virkilega enn ein heimsóknin í banka?
3. October, 2006 at 13:03 #506701704704009MemberJóe fer sjálfur ekkert í launkofa með það að hann hefur harla lítinn tíma til að tala við fjallaklúbba á þeysingi sínum. Annars stóð starfsfólk KB banka sig ágætlega í því í fyrra að sjá til þess að fulltrúar Ísalp fengju sneið af kökunni.
19. October, 2006 at 12:10 #506710703784699MemberJói er ekki eini fjallamaðurinn sem heldur fyrirlestra f. fjallaklúbba.
Hvað er Ísalp að gera í fyrirlestramálum? Er von á einhverjum skemmtilegum á næstunni?
Himmi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.