- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
31. December, 2008 at 12:24 #455752806763069Member
Ískönnunarleiðangur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
Úrdráttur:
Eyðileggingin er nánast alger. Örfáar línur í Múlafjalli eru líklega klifranlegar. Eilífsdalur er eins og við er að búast enn í aðstæðum. Öllum leiðum þar er ógnað af gríðarstórum hengjum.Dagsetning:
31.12.08Leiðangursstjóri:
Ívar F. FinnbogasonSkipstjóri:
Ívar F. FinnbogasonFyrst stýrimaður:
Ívar F. FinnbogasonYfir Bryti:
Ívar F. FinnbogasonYfir háseti:
Ívar F. FinnbogasonSkýrsla:
Dragháls:
Allir fossar opnir og erfitt að komast upp úr þeim á ís.Múlafjall:
Nokkrar auðveldar leiðir líklega enn klifranlegar.Brynjudalur:
Ýringur – ekki til staðar.
Orion – Opin og líklega óklifranlegur.Eilífsdalur:
Mikill ís en einnig stórar hengjur sem virðast úr fjarlægð nokkuð nýlegar.Vesturbrúnir:
Mögulega lítilháttar ís í Anabasis.Múlafjall:
Eyðilegging alger.Grafarfoss:
Einhver ís eftir, líklega ekki klifranlegt að svo stöddu.Tillögur til úrbóta:
Skammtíma lausnir:
Halda suður á bóginn. Beita Hálfdán þvingunum.Langtímalausn:
Hafa hrókaskipti á starfsliði og stjórn Seðlabanka Íslands og Veðurgerðar Íslands. Slíkt myndi leiða til raunhæfari efnahagsspáa og bjartsýnni veðurspáa.Aðrar athugasemdir:
Gleðilegt nýtt ár!Fyrir hönd leiðangurstjórnar,
Ívar F. Finnbogason31. December, 2008 at 18:35 #534982205892189MemberGleðilegt nýtt ár sömuleiðis.
Byrjum bara nýja árið á því að pota öxunum í grjót.
Ási
1. January, 2009 at 18:56 #534990309673729ParticipantÁ þessum kortum má sjá hvað veldur:
http://www.vedur.is/vedur/spar/atlantshaf/#teg=hitiHæðarkerfi situr sem fastast suður og austur af Íslandi. Hæðirnar snúast sem kunnugt er réttsælis um sjálfan sig og þetta kerfi dælir því heitu lofti yfir Ísland. Það kólnar ekki verulega fyrr en kerfið gefur sig hvenær sem það verður.
1. January, 2009 at 20:37 #53500ABParticipantÚff, ég veit ekki hvort ég vildi vera messagutti á skipi með sjálfan Hardcore í öllum æðri stöðum!
Þetta er óneitanlega skemmtilegasti pistill um lélegar aðstæður sem ég hef lesið.
Gleðilegt nýtt ár.
Kveðja,
AB
2. January, 2009 at 12:26 #53501SkabbiParticipantHELVÍTIS
FOKKÍNG
FOKK!Glegðilegt ár strákar og stelpur, þetta getur ekki annað en batnað héðan af. Þaggi?
Skabbi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.