Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifuraðstæður 2023-2024
- This topic has 13 replies, 7 voices, and was last updated 8 months, 2 weeks ago by Otto Ingi.
-
AuthorPosts
-
5. November, 2023 at 21:09 #84014Otto IngiParticipant
Ég og Palli fórum í Múlafjall 4. nóvember. Komnar fínar mixaðstæður fyrir boltuðu leiðirnar.
9. December, 2023 at 11:59 #84215Halldór FannarParticipantVið Bergur fórum í Villingadal í gær. Bæði Kerberos og Hades voru í góðum gír. Við tókum Kerberos þar sem annað teymi var á Hades. Það var lítill snjór í gilinu og klifruðum við því fyrst eina aðkomu spönn til að komast að meginfossinum. Síðan tókum við allan fossinn í einni 60m langri spönn sem var frábær. Til þess að forðast vatn sem draup báðum megin í fossinum þá var best að klifra hann upp miðjan sem gerði klifrið aðeins meira krefjandi. Það var 7 stiga frost og áin við veginn vel frosin en áin upp í gilið var allt annað en frosin. Það vakti furðu okkar þar sem hún er vatnsminni. Sennilega rennur heitara vatn í þeirri á. Sömu sögu er að segja um fossana. Það seytlaði ennþá töluvert vatn í þeim og þeir eiga eftir að vaxa umtalsvert á næstu vikum ef fram heldur sem horfir. Það var nægur ís fyrir tryggingar og margar skiluðu þurrum ískjarna.
V-þræðing frá toppnum var nakinn þar sem ísinn þar var þurr. Vegna frosts og seytlandi vatns þá myndaðist nokkur brynja utan á línunum og lentum við í því að Sterling Hollowblock fraus fastur utan um línurnar á síginu (tvær 8.1mm Beal Ice Line). Eina lausnin var að skrúfa sig inn, fjarlæga autuoblock uppsetninguna og síga án þess. Það er í fyrsta sinn á löngum ferli sem undirritaður upplifir slíkt. Eftir að hafa Googlað aðeins þá er þetta þekkt vandamál með Hollowblock í ísklifri og algeng lausn er að sleppa þessari uppsetningu við svona aðstæður. Önnur lausn er að nota grennri spotta fyrir autoblock eða prussik.
Attachments:
10. December, 2023 at 10:55 #84219Gunnar MárParticipantWierd Girls í Skálafelli var ágætum aðstæðum 9.12. Ísinn tók vel við skrúfum en síðasta haftið virkaði tæpt og laust frá berginu
10. December, 2023 at 12:52 #84220BjarkiParticipantFór í Brynjudal og klifraði Afmælisgjöfin í fínum aðstæðum 9.12. Annað á svæðinu leit út fyrir að vera þunt eða þurfa meiri tíma
10. December, 2023 at 17:17 #84242BergurParticipantDauðsmannsfoss 10/12 með prokop – vel klifralegur en talsvert vatnsflæði bakvið ísinn, slepptum stutta haftinu efst þar sem það var mígandi blautt og virtist ekkert tengt við bergið á bakvið.
talsverður ís í kjósinni, hrynjandi og allt þar í kring og spori litu vel út frá veginum.
11. December, 2023 at 15:37 #84246SissiModeratorFór í Múlafjall 3. desember ásamt Freysa og Ága. Þar var þvílíkt teymi, Robbi, Siggi Tommi, Stebbi Kalli, Ottó, Palli og Hallgrímur. Tvö til viðbótar sem ég þekkti ekki. Boltuðu leiðirnar mjög fínar, og eitthvað þarna lengst til vinstri klifranlegt með skrúfum.
Fórum aftur 9. des, ég, Freysi, Eyvi, Haukur Már, Ági og Þórhildur. Stígandi virkaði mjög ræfilslegur frá vegi. Fórum aftur í Testofuna, aðstæður eiginlega nákvæmlega eins. Virðist lítið sem ekkert rennsli vera þessa dagana.
Freyr setti tvo hringi fyrir ofan Helga, topp akkeri þar. Einnig setti hann hring fyrir ofan bratta kaflann í Fyrirburanum (ef ég les þetta rétt).
Skemmtilegt að þið fóruð í Weird Girls Gunnar Már, lítið farin leið sem er skemmtileg á skemmtilegum stað. Við vorum í spotta-öryggisgæslu fyrir danshópinn Weird Girls á þakinu á Höfðatorgi heilan dag fyrir ca. 15 árum í skítakulda og skutumst svo í hana í enn meiri skítakulda um kvöldið og skráðum, hún var fyrst farin löngu fyrr samt af öðrum (sjá topo).
Sá líka að Palli og Hallgrímur fóru í Grafarfoss á sunnudag, svo hún virðist vera dottin inn. En eftir morgundaginn spáir rigningu og hita.
12. December, 2023 at 13:31 #84287Halldór FannarParticipantLengi lumar Hvalfjörðurinn á meiri skemmtun. Við Ágúst fórum á nýtt svæði við Hvalfjarðareyri 10. desember. Við uppgötvuðum þennan ís í lok síðasta tímabils og höfðum einfaldlega ekki tíma til að fara í þetta áður en vorið kom. En um helgina gafst tækifærið og mikið var þetta gaman.
Ég er búinn að bæta þessu við á Hvalfjarðarsíðuna. Eins og sést þá er annar sektorinn ófarinn, þ.e. Sigurjón. Vonumst við til að aðrir ísalparar geri sér ferð – þetta er frábært æfingasvæði í afar kósí umhverfi. Reyndar sýndist okkur að Gunnar Már hefði farið í gær og því fögnum við innilega.
12. December, 2023 at 23:07 #84296Gunnar MárParticipantJú mikið rétt við sáum þennan kósí sector á instagram og stukkum af stað áður en topo-ið kom á vefinn. Skröltum niður einhverja brekku sem er kannski ekkert endilega besta leiðin en líkega sú stysta. Mjög gott æfingasvæði, við leiddum upp einhverja WI 3+/4 línu nálægt miðjunni, settum upp toprope og fórum endalaust af ferðum á stuttum tíma. Geggjuð æfing eftir vinnu og komnir heim í kvöldmat.
22. December, 2023 at 21:00 #84339MatteoKeymasterWent to Mulafjall today and climbed Scottish Leader M7 and Íste with mixed start M6
Looks conditions are good all over the crag but lines are forming18. January, 2024 at 11:46 #84563MatteoKeymasterClimbed Kleifarfoss in Hvalfjordur. ok conditions.
went checking in Brynjudalur: looks Orion and Yringur are ok but the rest of the valley looks very thin and only easy grades are climbable (not WI4 and above).
Some lines in Mulafjall looks ok
Eilifsdalur also looks to have ice but could not understand well because the sun was just above the lines and couldn’t see much.
Vestrurbrunir Esja looks dry25. January, 2024 at 11:39 #84657MatteoKeymasterClimbed yesterday in Eastern part of Hlaðhamrar in Mulafjall.
Some lines are ok, ice was wet and was snowing. a lot of umbrellas formed. we started exploring a new sector of the cliff more east then Musarindill A1 after the gully.25. January, 2024 at 11:40 #84659MatteoKeymasterClimbed yesterday in Eastern part of Hlaðhamrar in Mulafjall.
Some lines are ok, ice was wet and was snowing. a lot of umbrellas formed. we started exploring a new sector of the cliff more east then Musarindill A1 after the gully.5. February, 2024 at 09:44 #84778Gunnar MárParticipant55 gráður voru í ágætum en sólbökuðum aðstæðum í gær, fórum direct leiðina. Oliver loðflís leit út fyrir að vera klifranlegur. Tvíburagil er fullt af ís.
Attachments:
8. April, 2024 at 09:21 #85217Otto IngiParticipantVeturinn er ekki alveg búin, fór láglendisleiðina https://www.isalp.is/problem/fall-er-fararheill um helgina, en hún á nú bara örfáa daga eftir. Gæti trúað að leiðir í fullkomnum skugga og hátt uppi séu í góðum gír.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.