Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísklifrið á sunnudag
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
11. January, 2007 at 10:15 #454661704704009Member
Ísklifurfarar á sunnudag: Við erum 12 skráð og þar af 10 á Netinu. Ég er uggandi vegna snjóflóðahættu í Eilífsdal fyrir klifurferðina á sunnudag. Nú þegar er Esjan búin að stríða göngufólki einu sinni auk þess sem meiri snjósöfnun er spáð fram að helgi, að því ógleymdu að Eilífsdalurinn er jafnan varasamur snjóflæðir. Mér finnst nægur vafi í málinu til þess að taka ekki sénsinn á þessu og legg til að við förum í Villingadalinn í staðinn. Þar er nægur ís og svæðið nýkannað. Við þurfum að vera samhent í þessu, þetta er jú skipulögð Ísalpferð og mestu skiptir að koma heil heim.
12. January, 2007 at 15:03 #50890Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÞó að farið sé í Villingadal ætti fólk samt að hafa með sér snjóflóðagræjur. Ýli, stöng og skóflu.
12. January, 2007 at 15:27 #50891ABParticipantÉg held að Einar Ísfeld og Gummi Spánverji geti staðfest að Villingadalur sé varasamur í snjóflóðaaðstæðum. Einar sagði mér frá því að fyrir allmörgum árum hafi þeir kumpánar staðið í dalsmynninu og íhugað hvort gönguleiðin að fossunum væri örugg. Þeir létu slag standa og þegar þeir höfðu gengið inn dalinn (og hafið klifrið? Man þetta ekki alveg) hreinsaði hlíðin sig.
Var sagan ekki u.þ.b. svona?
Kveðja,
AB12. January, 2007 at 16:15 #508921704704009MemberÞað fýkur í skjólin flest. Snjósöfnunin heldur áfram annaðvköld með feykilegri ofankomu. Er í sambandi við Veðurstofuna varðandi snjóflóðahættu til fjalla. Hef takmarkaðan áhuga á að lenda í snjóflóðum og pósta út nýjum fréttum með góðum fyrirvara.
12. January, 2007 at 17:13 #508931012734079MemberJú Andri þetta var einhvern veginn svona. Ég og Ívar fleytum þarna niður brekkuna fyrir neðan aðalleiðirnar með einu frekar stóru flekaflóði nokkru fyrr. Ég var sá sem setti flóðið af stað í Esjunni á sunnudag. Í gili þessu voru staðsett tvö flekalög og stóð ég á þessu sem setti allt af stað í einungis 5-10 sekúndur. Aðstæður í fjöllum í nágrenni Rvk eru hættulegar. Farið varlega annars svo þið eyðileggið ekki daginn fyrir samferðamönnum ykkar eins og KING sagði um árið!
Kv. Spánverjinn
12. January, 2007 at 22:28 #508941704704009MemberVillingadalurinn er út úr myndinni á sunnudag. Talaði við veðurstofuna og niðurstaðan er sú að Villingadalsferð færi að snúast upp í óþarfa áhættu. Mér finnst engan veginn forsvaranlegt að standa í slíku í skipulagðri Ísalpferð.
Þess í stað kemur plan c: Grafarfoss og Granni. Ný auglýsing komin á dagskrársíðuna.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.