- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
28. January, 2009 at 19:03 #46522Gummi StParticipant
Jæja, gott að vita að það er búið að ákveða staðsetninguna, Bíldudal.
Ég hef komið þarna nokkrum sinnum undanfarið í vinnuferðum og eina svæðið sem ég hef í huga á þessum slóðum er svæðið þar sem maður kemur niður af Kleifaheiðinni í Patreksfjörð. En ég hef ekki farið í Arnarfjörð í vetrarhami, enda eru þá fjallavegirnir lokaðir.
Á Bíldudal er flugvöllur hinumegin við Sléttarfjall (nokkra mín. keyrsla) fyrir þá sem nenna ekki að keyra. (Flugfélagið Ernir flýgur þangað ef ég man rétt).
Helstu staðir sem mér dettur í hug að fara á eru í NA- átt frá þorpinu, þar eru dalir sem heita Hvestudalur, Hringsdalur, Fífustaðadalur osfrv… held að það séu þessir Ketildalir en ég fann þessa loftmynd á google sem sýnir þennan part: http://jakobk.blog.is/users/55/jakobk/img/bildudalur.jpg
Annars væri gaman að sjá einhverjar fleiri myndir af aðstæðum ef einhver lumar á slíku..
Svona lítur þorpið út, tók þessa mynd núna í okt:
http://www.internet.is/gummistori/Bildudalur_15okt08.jpgEr svo ekki málið að taka með borvélar, bolta og augu til að setja upp mixleiðirnar fyrir okkur klettagröðu kallanna?
28. January, 2009 at 23:16 #53668Siggi TommiParticipantSpurning hvort njósnarar klúbbsins hafi nokkuð komið auga á glerharða grjótveggi með haug af lafandi ísspenum einhvers staðar kringu Bíldó.
Það hljóta að vera einhver gil þarna en væri voða gott að geta gengið að því svo ekki þurfi að leita þegar á hólminn er komið…29. January, 2009 at 14:58 #53669RobbiParticipantÞað eina sem ég sé sem möguleika á þessum myndum er…
FOKK ! snjóflóð.Robbi
29. January, 2009 at 19:25 #53670SissiModeratorÞað er tæknilega ómögulegt að það falli snjóflóð þarna Robbi
29. January, 2009 at 20:11 #536710309673729Participanthttp://www.vedur.is/ofanflod/vidbunadur/bildudalur/
Það gæti verið óvitlaust að hafa samband við Leif á Veðurstofunni til að athuga með snjóflóðahættuna á svæðinu rétt fyrir festivalið.
kveðja
Helgi Borg29. January, 2009 at 20:14 #536721506774169MemberÞað er tæknilega ómögulegt að það falli snjóflóð á flatlendi, annars staðar er sú áhætta fyrir hendi í mismiklu magni
29. January, 2009 at 22:29 #53673SissiModeratorRangt. Spurðu bara Robba.
29. January, 2009 at 23:59 #53674Gummi StParticipantákvað að pósta stórri mynd af Bíldudal sem ég tók í haust ef þið viljið sjá þetta betur:
http://www.flickr.com/photos/gummistori/3237018161/sizes/o/
kv. Gummi St.
30. January, 2009 at 09:08 #53675Siggi TommiParticipantVar þarna á ferð um sumar 2006 og sá einmitt mikla möguleika í skálunum inni í Ketildölunum.
Hvestudalur (næsti dalur utan við Bíldudal) var þar með áberandi stóra skál sem minnti mjög á Naustahvilft og var slatta bleyta þar og því líklega kjörlendi. Svona skálar voru svo víðar en ekki eins greinilegt potential.
Svo eru hlíðarnar sem vísa út í Arnarfjörðinn á milli dalanna líklega með efni í leiðir í áttina að því sem má finna í Óshlíð og Berufirði. Vona að myndirnar sem stjórnin ætlaði að deila með okkur sýni þetta eitthvað.30. January, 2009 at 09:48 #536761306795609MemberÉg gæti sett inn smá prófíl af svæðinu á mínum síðum í dag (föstudag). Þessar myndir sem við höfum fengið eru nú ekki efni í ársritið en gefa tóninn. Það er um að gera fyrir forvitna að rýna í myndir og kort. Auk google earth er hægt að kíkja á Mynd- og kortaskjái á http://www.lmi.is.
1. February, 2009 at 09:33 #536771306795609MemberÉg er nýbúinn að pósta smá upplýsingum um Bíldudalinn á mínar síður (á sunnudegi, lofaði upp í ermina á mér í síðustu færslu).
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.