Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ísfestival 2011
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
1. February, 2011 at 10:04 #47499Gummi StParticipant
Nú styttist óðum í ísfestivalið og hafa helstu upplýsingarnar verið settar inná atburðinn.
Mikilvægt er að þeir sem ætla að mæta greiði fyrir gistinguna fyrir þriðjudaginn 8. feb. og ekki hafa áhyggjur, ef þetta frestast eða leggst af þá fá að sjálfsögðu allir endurgreitt.
Er ekki kominn góður spenningur fyrir þessu? Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ausað úr sínum hitabrunni yfir okkur í janúar stefnir veðrið í frost á ný.
Jón sagði mér að það sé enn snjór í fjöllum og ætlaði að kíkja á aðstæður í dag, læt ykkur vita.
2. February, 2011 at 11:14 #56272Siggi TommiParticipantJá, klárlega gríðarlegur spenningur fyrir þessu.
Spennandi að sjá hvað ískönnunarleiðangurinn gefur af sér.6. February, 2011 at 23:08 #56287Gummi StParticipantFékk þessar myndir volgar úr vélinni frá Bíldudal á föstudaginn, hafði því miður ekki tíma til að senda þær hingað inn fyrren nú…
http://www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3961.JPG
http://www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3962.JPG
http://www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3963.JPG
http://www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3965.JPG
http://www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3966.JPGmbkv,
Gummi St.7. February, 2011 at 09:32 #56288gulliParticipantVoru þessar myndir teknar á föstudaginn? Lítur ágætlega út. Það væri gott að fá nýjar myndir síðar í vikunni og kannski upplýsingar um snjóaðstæður …
Annars lítur þetta nú bærilega út, er fólk ekki spennt?
7. February, 2011 at 11:26 #562890304724629MemberVið stefnum á að koma þrír frá Ísó. Ég, Búbbi og Kanadíska undrabarnið hann Danny. Ætla menn almennt að mæta á föstudeginum?
7. February, 2011 at 13:10 #56290gulliParticipantHeld það sé misjafnt. Helst vildi ég taka langa helgi, bæta við föstudegi eða mánudegi eftir því hvernig spáin er …
7. February, 2011 at 14:23 #56291SkabbiParticipantsælir
Gaman að fá þessar myndir Gummi, það vantar ekki ísinn þarna eins og er. Spárnar fyrir helgina eru að detta inn núna, virðast vera umhleypingar í báðar áttir framundan. Hvernig líst snjóflóðasetrinu fyrir vestan á aðstæðurnar framundan, er e-ð hægt að segja með vissu?
Skabbi
7. February, 2011 at 14:56 #562922301823299MemberSé að það er búið að fresta festivalinu um óákveðinn tíma sem er hálf grátlegt í ljósi þess að maður situr í vinnunni og horfir upp á æðislegt vetrarveður út um gluggan.
Ef þetta heldur svona áfram þá verðum við að hugsa út fyrir landsteinana með næstu festivöl
7. February, 2011 at 14:59 #56293Freyr IngiParticipantHæ,
eins og staðan er núna virðist ísklifur ekki eiga upp á pallborðið hjá veðurguði vorum.
Minni ís er við Arnarfjörð en á seinasta festivali en það svo sem væri allt í lagi ef ekki væri fyrir það að bannsett veðriði virðist ætla að vera með hamagang um helgina.
Sú ákvörðun hefur því verið tekin að fresta festivalinu að sinni um óákveðinn tíma.
Ísalp finnst ekki heillavænlegt að stefna fjallafólki á svæði þar sem aðstæður þykja ekki öruggar.
Við munum að sjálfsögðu fylgjast með spánni fram að helgi og reyndar allar komandi helgar með von um að geta haldið hið frábæra klifurmót sem ísfestivalið er.
7. February, 2011 at 15:49 #56294gulliParticipantÞetta er grautfúlt. Ég og margir fleiri eru búnir að stíla inná þessa helgi og komast ekki á öðrum tíma.
Maður finnur sér þá eitthvað annað til dundurs um helgina.
7. February, 2011 at 16:36 #56295Freyr IngiParticipantVissulega er þetta grautfúlt.
Það er alveg vitað að það er líklegra til árangurs að færa staðsetningu frekar en tímasetningu þegar kemur að svona viðburðum.
Það er jú einu sinni bara mánudagur og ef menn sjá smugu einhversstaðar á tiltölulega hættulausu ísklifri(snjóflóða- og hrunhætta í lágmarki) þá er þetta að sjálfsögðu vettvangurinn til að deila þeim hugmyndum með okkur hinum.
7. February, 2011 at 18:23 #56296SissiModeratorFokking fokk.
Ég er til í nánast hvað sem er, jafnvel sundblakmót. Gerum eitthvað.
Sissi
7. February, 2011 at 20:07 #562970111823999MemberÉg skal skella í eitt festival hérna hjá mér .. Hérna má klifra út um allt og ég skal búa til mexikóska kjúklingasúpu ala Helga!
Kveðja frá Norge!
8. February, 2011 at 11:06 #562991001813049Member -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.