- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
25. May, 2010 at 20:23 #47417Björgvin HilmarssonParticipant
Hver gleymdi/skildi eftir bláan nalgenbrúsa á Hnappavöllum um helgina? Ef einhver gerir tilkall til hans þá getur sá látið í sér heyra.
25. May, 2010 at 22:54 #55445BjörkParticipanthei!
Annars væri alveg gaman að heyra í Ísölpurum, hvað var gert um helgina?Var fjölmennt á Hnappavöllum? Frétti að einhverjir hafi farið á Þverártindsegg? Væntanlega einhverjir á Hnjúkinn? Einhverjir fóru í vorskíðun?
Færum facebookstatusa á spjallið
kv. Björk
26. May, 2010 at 09:09 #55446Arnar JónssonParticipantVið Gummi og Óðinn kíktum uppá Eggina á laugadaginn í glimrandi sól og hita. Eftir það skelltum við okkur á hnappavelli þar sem veður var ágæt. Myndir frá eggunnu má sjá á síðunni okkar.
Kv.
Arnar26. May, 2010 at 12:46 #554470703784699MemberEr með í fórum mínum snjóakkeri (silfurlitað) með blágrárri FiveO karabínu sem fannst í hlíðum Skarðsheiðarinnar síðasta sumar.
Eigandi óskast,
Himmi
26. May, 2010 at 16:35 #55448SkabbiParticipantHæ
Breyti hér með nafni þráðarins. Eigandi Bláa Nagensins verður bara að sætta sig við það.
Helginni eyddi ég að fornum sið á Hnappavöllum. Þar var að venju margt um manninn, börn, gamalmenni og allt þar á milli. Klifurveður með besta móti alla helgina, þurt og stillt framanaf en bjart og hvasst undir lokin.
Saknaði reyndar drykkjulátanna sem eitt sinn einkenndu þessa helgi, en tímarnir breytast víst og mennirnir með.
Allez!
Skabbi
26. May, 2010 at 20:17 #554491908803629ParticipantGekk upp á hnjúkinn, loksins eftir margra ára bið. Verst að það var gert á föstudaginn þegar útsýnið var jafn mikið og í þvottahúsinu heima…
Thumbs up til myndanna hans Gumma, hrikalega flottar.
26. May, 2010 at 23:40 #554500808794749MemberÉg fór ásamt fríðum flokki skíðafólks inn í Flateyjardal. Gerðum út frá Heiðarhúsum og röltum á nálæga tinda sem bjóða upp á frábærar rennslisbrekkur. Eðal-vorfæri og frábær stemmning.
p.s. að minnsta kosti helmingur ferðafólks gat farið með tryllta fylleríssögu af Hvítasunnu á Hnappó.
27. May, 2010 at 10:43 #554511509815499MemberFríður hópur (aðalega norðanmenn)fóru á Látraströndina og skíðuðu þar nærliggjandi toppa. Amk tveir heleski toppar voru sigraðir.
Mér telst til að amk. 25 manns skíðuðu frá Látraströnd að Flateyjardal þessa helgi. Sennilega fleiri sem ég veit ekki um.Myndir og video væntanlegt
27. May, 2010 at 16:57 #554522006753399MemberHvítasunnan var vinnuhelgi að vanda. Rölt á hnjúkinn á laugardag og ætlaði að skíða svínafellsjökulinn á mánudag en var sjanghæaður í aðra ferð á hnjúkinn. Það var amk. bíltúr austur með nýju skíðin!
27. May, 2010 at 20:53 #55453Ágúst Þór GunnlaugssonParticipant9 Garðbæingar skruppu á Þverártindsegg. Skemmtilegt fjall það. Stutt og bratt.
Ági
28. May, 2010 at 10:07 #55456Páll SveinssonParticipantHátindahöfðinginn er svo hógvær að hann telur það ekki til tíðinda að gæda þrjá tinda í röð.
En hann fór með þrjá mismunandi hópa á Hnjúkinn, Þerártindsegg og Hrútfellstinda á 43 tímum um Hvítasunnuna.kv
ps28. May, 2010 at 13:19 #554572210803279MemberFórum fjögur upp Hnappavallaleiðina á Öræfajökul og gistum tvær nætur rétt norðan við Hnjúkinn. Fórum á Þuríðartind, norðurhlíðina upp á hnjúkinn, Dyrhamar, Sveinstind og Sveinsgnýpu, Rótarfellshnjúk og Vestari Hnapp. Engin hasar en geggjað veður og sólbrunnin nef.
28. May, 2010 at 17:28 #554581001813049Memberá laugardaginn skellti mér 9 holur í extreme golf náði pari á 6. og 9. endaði svo daginn á góðri ferð Mollið og grillaði um kvöldið.
Toppiði það
Kv. KM -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.