Mér flaug í hug að setja hér link á myndir úr ferð sem við fórum fjögur á Hrútsfjallstinda í vor. Hrepptum arfa slakt veður, snjókomu og skyggni 0 metrar mest alla leiðina og mikill snjór að vaða…enda tók túrinn 26 tíma. En alveg stórskemmtilegt klifur á mögnuðu fjalli. Myndirnar eru teknar af Heiðari og Olgu.
Takk fyrir að pósta svona flottum myndum, bjargaði alveg deginum hjá mér..
þetta hefur verið þrusuferð hjá ykkur. Ég þarf að fara að drullast upp þessa leið, geri það næsta vor..