Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Herðubreið
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
5. June, 2011 at 10:07 #47517
Karl
ParticipantNú er vegurinn að uppgöngunni á Herðubreið orðinn snjólaus en jafnframt er fínn snjór á fjallinu, alveg niður að flatlendi.
Kjöraðstæður til að skíða þessa sparibrekku.
Það virðast samantekin ráð að banna akstur um vegina, þrátt fyrir að þeir séu orðnir rykþurrir og gerðir úr frostfríu efni og þar sé aldrei aurbleyta…..
Helvíti hart að bannað sé að fara Þurran Þjóðveg að Þjóðarfjalli í Þjóðgarði þegar færið er best.Það leit einnig vel út með skíðafæri í Öskju og Kverkfjöllum. Fjöllin eru alhvít en hraunin og vegurinn rykþurr. Sennilega bætir í snjóinn í fjöllunum í vikunni en ólíklegt að snjói neðan 600m
Sést þokkalega á þessari mynd frá í gær:
http://rapidfire.sci.gsfc.nasa.gov/subsets/index2.php?project=firms&subset=Iceland.2011155.terra.721.250mSpurning hvort vegagerðarmaðurinn sem gaf út þetta kort hafi verið að jappla á sveppum af e-h umferðareyjunni við Sæbrautina.. http://www.vegagerdin.is/media/umferd-og-faerd/Halendi.pdf
En kanski er þetta hluti af opinberri velferð að forða mönnum frá að skrölta á rykþurrum þvottabrettum í Ódáðahrauni í júní….6. June, 2011 at 12:54 #567440808794749
MemberHvað með ösku?
Sleppur maður við slík leiðindi á Herðubreið?6. June, 2011 at 23:35 #56747Karl
ParticipantÉg veit ekki um öskuna þar sem töluvert hefur snjóað eftir gos.
Það var tam nær ekkert öskufall í Mývatnssveit6. June, 2011 at 23:52 #56748Smári
ParticipantVeit nokkur hvenær vegurinn verður hugsanlega opnaður?
Smári
7. June, 2011 at 00:08 #56749Sissi
Moderator17 júní að meðaltali sýnist mér
7. June, 2011 at 00:38 #56750Karl
ParticipantYfirleitt er orðið vel fært í Herðubreiðarlindir í mai. Leiðin er alfarið á frostfríu efni og því aldrei aurbleyta eða hætta á vegarskemmdum.
Vegurinn er töluvert niðurgrafinn sitt hvoru megin við Tumba og þar sitja skaflar stundum fram í júní (eru farnir núna).
Lokun vegarins um Herðubreiðarlindir er því ekki til að koma í veg fyrir drulluakstur og í því ljósi engin ástæða til að virða lokanir. Hinsvegar er lokuninn til að koma í veg fyrir að e-h sauðir aki utanvegar til að forðast skafla og þó fyrst og fremst til að styggja ekki heiðagæsarvarp í Herðubreiðarlindum. Það er hinsvegar hægt að aka að Herðubreið frá Möðrudal án þess að styggja þessa bleikfættu vargfugla.
Þankagangur Vegagerðarinnar er að setja akstursbann á allann veginn þangað til þeir dratthalast til að ryðja snjóinn af veginum í Öskjuop.Samtök Útivistarfélaga SAMÚT eru að vinna að því að fá þessum umferðartakmörkunum breytt í átt að almennri skynsemi.
9. June, 2011 at 09:02 #56752Sissi
ModeratorAnnars er svo mikið vor hérna í Reykjavík að í gærkvöldi sýndist mér vera eitthvað af nýjum ís í Ísþilinu (leið #41)og það skóf fram af Virkinu (séð frá horni því er við Þverfell er kennt).
Er þetta spurning um að fara að dusta rykið af ísklifurdótinu og búa sig undir gott skíðasumar?
9. June, 2011 at 15:26 #56753Gummi St
ParticipantSissi, eigum við ekki bara að athuga hvort Þilið nái ekki niður?
9. June, 2011 at 15:42 #56754Sissi
ModeratorEr það ekki alltof létt fyrir okkur?
9. June, 2011 at 18:07 #56756Gummi St
ParticipantEkki þegar ég er í bláa beltinu sem þú heldur svo mikið uppá
22. June, 2011 at 23:19 #56783Karl
ParticipantNægur snjór á Herðubreið. Nýr snjór yfir allri ösku en nýi snjórinn helvíti gljúpur og betra að hafa sæmilegar kringlur á stöfunum. Nýlegt snjóflóð sem fór yfir veginn að uppgöngunni. Fínn skíðasnjór í Öskju og Löngufönn.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.