Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Haukadalur ?
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
7. January, 2005 at 09:57 #45502RobbiParticipant
Hefur einhver fréttir af haukadal, er hann ekki kominn í dúndur aðstæður ?
robbi7. January, 2005 at 10:51 #49264AnonymousInactiveÞú getur alveg fullyrt það um Haukadalinn að þar eru mjög góðar aðstæður ekki spurning. Það er bara spurning um snjóalög. Það er bara allt í aðstæðum núna og ef menn fara ekki að klifra um helgina er eins gott að selja draslið e þaggi?!!
7. January, 2005 at 10:52 #49265AnonymousInactiveÁ að fara að æsa í “social” klifrur um helgina???
7. January, 2005 at 10:58 #49266Stefán ÖrnParticipantEn ef menn vilja frekar fara á skíði….þarf þá samt að selja drazlið?
Steppo
7. January, 2005 at 11:37 #492673008774949Memberja hér
Ég segi nú bara eins og Ívar…eða þannig
Til hvers að klifra þegar maður hefur snjó!!!!7. January, 2005 at 12:24 #49268RobbiParticipantÉg legg til að menn og konur leggi leið sína í sósíal klifur í haukadal með tilheyrandi gamani. Ég ætla amk að fara ásamt fríðu föruneyti og ég vona að sem flestir láti sjá sig.
Pælingin er að leggja af stað snemma á laugardagsmorgun og gista jafnvel og ná þá 2 góðum klifurdögum. Spáin er frábær og ég skora á menn, og konur að taka við sér og skella sér með.
Koma svo !
robbi7. January, 2005 at 12:47 #49269ABParticipantÉg segi nú bara eins og Djonn.
Til hvers að klifra þegar maður hefur enska boltann, bjór og pringles.Rop!
Aaahhh, obbobobb, ég held ég sé búinn að bæta aðeins á mig…
Kv,
AB7. January, 2005 at 13:24 #492701704704009MemberTil sölu ísskrúfur og karabínur, ísöxi með löngu skafti og einnig stuttu. Íshamar og ískalt pepsi á sama stað. Einnig fást Blizzard skíði með bindingum og DC-1 Casio hljómborð. Einnig fjögur heilsársdekk á Subaru Justy 1987 og hátalarar. Þarfnast lagfæringar en allt í nokkuð góðu standi.
Er þetta ekki sölusíðan annars?
-Nei
-Já
-Nei7. January, 2005 at 13:26 #49271AnonymousInactiveRobbi þið verðið að leggja af stað 6-7 annars er dagurinn farinn.
Því miður er ég upptekinn á laugardagskvöldinu svo ég verð að sleppa frábæru boði, endilega koma með leiðirnar sem þið klifruðuð hér á síðunni á mánudaginn. Ég ætla í staðinn inn í Glymsgil í social klifur. Klifurkveðjur Olli7. January, 2005 at 17:34 #49272Siggi TommiParticipantStefnum á að reyna að drattast af stað um 7. Ekki hægt að taka það alpalegra en það þegar maður fer á létt skrall úti á galeiðunni í kvöld.
Setjum inn myndir ef einhverjar verða þokkalegar.8. January, 2005 at 19:06 #492732806763069MemberVar að koma úr dalnum, það er ekkert smá mikið af ís þarna, og snjó. Fór eingöngu inn í gilið þar sem 240 og það allt er enda er því minnst ógnað af hengjum.
Fullt af möguleikum á nýjum leiðum ef menn hafa auga fyrir því og hreðjar í það.Trommarinn er í rosalegum aðstæðum, líklega ein erfiðasta leið sem ég hef klifrað í svona feitum ís eins og hann er núna.
Skemmtið ykkur vel!
Gvöð minn góður þvílíkur vetur!
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.