Glerárdalshringurinn

Home Forums Umræður Almennt Glerárdalshringurinn

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46566
    2808714359
    Member

    jæjabæja, var að vakna eftir að hafa gengið Glerárdalshringinn í gær og í nótt. Verð að viðurkenna að ég var pínu þreyttur, og jafnvel aumur á nokkrum stöðum.

    Fyrir þá sem ekki vita er Glerárdalshringurinn fjallgönguviðburður sem genginn er einu sinni á ári. Gengið er frá skíðahótelinu í Hlíðarfjalli upp á Hlíðarfjall og þaðan (eins og leið liggur alls ekki) alla toppa hringinn í kringum Glerárdalinn og endað á Súlum. Þetta er 45km. leið og 24 fjöll með samtals hækkun upp á litla 4500m. Kerling er hæst 1538 m.y.s. og eru 11 fjöll í hringnum yfir 1400 m.

    Í ár var metþáttaka uþb. 140 manns. Fólk velur sér hraðahóp A, B eða C. A hópurinn gengur leiðina á um 20 tímum, B hópur á um 24 tímum og C á um 28 tímum. Síðan getur fólk dottið niður um hópa og hóparnir skiptast upp eftir getu göngumanna.

    Færið og veðrið í ár var frábært. Sól og milt næstum allan tímann og töluverður snjór sem gerir leiðina auðveldari.

    Þetta var fyrsta skiptið mitt og gekk ég með B hóp sem kláraði á rúmum 21 tíma sem er frábær tími fyrir B hóp.
    Glerárdalshringurinn er frábært ævintýri fyrir þá sem vilja athuga hversu mikið þeir þola og eru haldnir umtalsverðri sjálfspíningarhvöt því það er ótrúlegt hvað mann getur verkjað á marga staði eftir svona langa göngu.

    kíkið á heimasíðu Glerárdalshringsins til að kynna ykkur málið betur: http://www.24×24.is

    kv
    Jón Heiðar

Viewing 1 post (of 1 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.