Fyrsta bouldermót vetrarins verður haldið í Klifurhúsinu laugardaginn 18. okt.
Þetta verður skemmtilegt og fjölbreytt mót þar sem búist er við mikilli þátttöku.
Nú er bara að fara að æfa fyrir mótið.
Nánari upplýsingar koma hér á vefnum síðar en einnig er hægt að hafa samband við Klifurhúsið.