Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Fyrir sófaklifrarana…
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
4. November, 2009 at 12:39 #47254RobbiParticipant
Í þessari vonlausu og íslausu gúrkutíð þá er nú í minnsta lagi hægt að horfa á ísklifur óg láta sig dreyma. Við Ási erum búnir að sitja sveittir við klippingar síðustu daga og hér er afraksturinn:
Njótið…
Robbi
4. November, 2009 at 15:45 #54645Björgvin HilmarssonParticipantnIce stuff! Gaman aðððessu, meira meira. Ási, átt þú ekki líka meira af klifurklippum sem þú átt eftir að setja saman góða ræmu?
4. November, 2009 at 20:21 #546462205892189MemberJúbb, er að vinna í að púsla saman smá hnappavalla klippu.
5. November, 2009 at 00:01 #54648Siggi TommiParticipantÞetta er glæsilegt piltar.
Takk fyrir þetta og hlakka til að sjá meira.Annars vil ég minna á þurrtólunarkvöld í Klifurshúsinu á miðvikudögum frá kl. 21:30-23:00.
Í síðustu viku vorum við Ási bara tveir að sperra okkur og í kvöld var ég einn. Ekki líklegt að Hjalti nenni að halda þessu úti ef enginn mætir.
Þýðir lítið að ætla að koma sér í form þegar ísinn er kominn því hann er fljótur að fara…
Tíminn er NÚNA!!!5. November, 2009 at 09:02 #546492806763069MemberMenn hafa nú reyndar aðeins verið að beita tólunum í hádeginu á þriðjudögum og fimmtudögum – þannig að þú situr vonandi ekki alveg einn að erfiðari leiðunum í vetur.
kv.
Ívar5. November, 2009 at 10:49 #546502109803509MemberTöff vídeó hjá ykkur strákar. Meira af þessu
kv. Berglind og Arnar
5. November, 2009 at 12:56 #546510111823999MemberNice job.. Geggjað video hjá ykkur strákar!
5. November, 2009 at 14:53 #54652SkabbiParticipantHæ
Fyrst þessu þráður er hvort eð er kominn út um víðan völl ætla ég að bæta smá við. Á heimasíðu Patagonia er að finna sæg af skemmtilegum myndböndum. Einn gullmolinn sem ég rakst á þar fjallar um alpinisma með þeim Micah Dash og Johnny Copp.
http://www.youtube.com/watch?v=UgKBQ1P3t54
Það er sorgleg eftirskrift við þetta myndband að þeir félaga fórust í snjóflóði ásamt fálaga sínum Wade Johnson e-sstaðar í Kína síðastliðið sumar.
Þar hafiði það.
Skabbi
5. November, 2009 at 20:47 #54654Freyr IngiParticipantVel gert drengir!
Skemmtilegt myndband maður!
Líst vel á þróun íslenskra hreyfimynda, spurning um að safna saman og bæta við íslenkum degi á Banff hátíðinni.
Haldið áfram að mynda og klippa.Freyr
5. November, 2009 at 23:05 #54655Siggi TommiParticipantÞetta Long Ways vídeó er assgoti góður skítur.
Temmilega ekspósd bivakk syllan þeirra… -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.