Ísafirði 20. febrúar kl. 13:30
Góðu Ísklifrar!
ATH Kortakvöld á fjallakránni Langa Manga við Aðalstræti kl 22:30 í kvöld!!
Ég drífði mig í morgun til Ísfjarðar og er búinn að skipa sjálfan mig í lítilsháttar gestgjafahlutverk hérna fyrir vestan.
Í stuttu máli er aðstæður til klifurs bara þokkalegar séð héðan frá sjávarmáli og öll þessi svæði sem við þekkjum ættu að vera í standi. (Óshlíðin er þó ekki í essinu sínu þegar snjóar mikið í suð-vestanátt). Í morgun voru nokkuð dimm él en þau eru orðin gisinn og mjög bjart á milli þegar þetta er skrifað. Ég setti inn 5 stk myndir á mína síðu (Eiríkur Gíslason) sem voru teknar milli 11 og 12.
Fyrsti dagskrárliður þessa ágætu hátíðar verður “kortakvöld” á fjallakránni Langa Manga og er mæting kl 22:30 (eða þegar menn skila sér). Búið er að semja við Manga um bjórverðið fyrir hátíðargesti (450 kall) en hann býður einnig upp á bjór með sykri í flösku á 350 kaggl.