- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
20. February, 2012 at 09:15 #459551811843029Member
Góðan dag
Um helgina var farin ferð til að kanna aðstæður og finna leið til að koma Bratta til byggða.
Eins og margir vita stendur til að flytja Bratta til byggða og endurbyggja hann, enda er skálinn orðinn ansi lúinn.
Ferðin um helgina gekk vel, en Isalp hefur fengið til liðs snjóbíla og mannskap frá Hjálparsveitum Skáta í Reykjavík og Kópavogi ásamt Arsæli þannig að það er topp mannskapur og tæki í þessu verkefni.
Stefnan er svo að flytja skálann á næstu vikum þegar veður og aðstæður eru hagstæð.
Spennandi!
20. February, 2012 at 18:00 #57512KarlParticipantEr e-h nýtilegt í Bratta sem ástæða er til að flytja til byggða? (fyrir utan rústfría reykrörið sem smíðað var á öldinni sem leið en hefur ekki verið sett upp)
Bratti er ekki það gamalt hús að það teljist til menningarverðmæta og var reist sem nokkurskonar braðabirgðabúggí þegar glænýr og stærri skáli splundraðist í fárviðri.Er ekki hakvæmara að byrja á nýju húsi frá grunni og nýta núverandi hús sem eldivið þegar nýtt kemst í notkun?
Eins veit eg að Akurneskir hjálparsveitargemlingar hafa hug á að leggja hönd á plóg.
20. February, 2012 at 19:34 #575141811843029MemberSú hugmynd að gera þetta eins og þú segir Kalli kom einmitt upp þegar verið var að ákveða hvernig þetta yrði gert. Málið var skoðað frá ýmsum hliðum, þjóðgarðurinn, byggingafulltrúi og fleiri voru hafðir með í ráðum og úr varð að skálinn yrði sóttur.
Skálanefndin og stjórnin hafa einmitt hug á því að endurbyggður Bratti verði eins og hann átti upphaflega að vera, það er eins og sá sem fauk.
Akurnesingar eru með í ráðum, meira um það síðar.
Atli
21. February, 2012 at 11:34 #575172806763069MemberÞetta eru frábærar fréttir. Góður skáli þarna væri alger draumur fyrir námskeiðishald. Endilega hugsa einnig fyrir því með því að setja upp góða tússtöflu líka (og skjávarpa).
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.