Veit einhver hvernig ástandið er uppá Fimmvörðuhálsi hvað snjó varðar þ.e.a.s. í hvaða hæð komumst við í snjó og er nóg af honum eftir það?
Er að spá í þessu þar sem ég er að plana gönguferð þangað um páskana. Gott að vita uppá að hafa hugmynd um hversu mikill hluti leiðarinnar verður á snjó.
Var um seinustu helgi á Hamragarðsheiði og Eyjafjallajökli og nágrenni, það lá snjór yfir öllu og snjóaði svo meira um nóttina, ef það verður ekki þeim mun meiri þýða myndi ég gera ráð fyrir snjó alla leiðina.