Festivalið

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Festivalið

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #46245
    Anonymous
    Inactive

    Góðir hálsar!
    Ég legg til að við hreinlega gerum það besta úr þessu festivali og mætum öll í Eilífsdalinn(mæting á ákveðnum tíma niðri í Klifurhúsi). Tröðkum inn dalinn og æsum upp smá hópstemmingu hvað segið þið um það???. Spáin er frábær hér fyrir sunnan og nægur ís í dalnum.
    Það væri hreinlega aumingjaskapur að notfæra sér það ekki.
    Við gætum síðan komið saman á laugardagskvöldinu heima hjá einhverjum(ég gæti jafnvel skaffað stað ef ég get brosað til konunar :) ) með eitthvað á grillið og drykki.
    Síðan er hægt að ræða hvort við förum aftur í Eilífsdalinn eða Villingadalinn á sunnudeginum
    Ísklifurkveðja Olli

    #50248
    Páll Sveinsson
    Participant

    Hvernig væri að véla út lykil að dj.. keðjudraslinu og keira inn dalinn.

    Það eru ekki allir jafn mikklir göngugarpar.

    kv.
    Palli

    #50249
    0311783479
    Member

    Sælt veri fólkið

    Þar sem ég kem gagngert norður í ballarhaf til að fara á ísfestival, þá er öngvin uppgjöf í mér. Klifur skal það verða hvar sem það er að finna. (Búinn að kaupa skrambans viskýið)

    Hvernig er með vestfirði Rúnar/Eiríkur, kemur hann ekki snemma og fer seint þar?

    Annars hljómar Eilífsdalurinn alltaf fínt, Skarðsheiðin er fésið inni?

    Hvað sagði Einar Öræfingur með aðstæður í fjöllunum, e-ð í Hrútfjallstindum?

    -kv.
    Halli

    #50250
    Anonymous
    Inactive

    ÞekkiR ekki einhver fólk sem á sumarbústað í dalnum? Það hlýtur að vera hægt að fá lánaðan lykil. Er annars hægt að keyra þarna langt inn án þess að valda landspjöllum???
    Ég er sannfærður um að það er alveg hægt að gera góða hluti þarna, ég sem farið hef flestar leiðirnar þarna er alveg sáttur við staðinn því mig LANGAR BARA AÐ KLIFRA!!!!

    Ef Einar segir að aðstæður séu ekki góðar er alveg hægt að treysta honum. Hann þekkir aðstæður þarna betur en nokkur annar.
    Klifurkveðjur Olli

    #50251

    Ég kem

    #50252
    Sissi
    Moderator

    Ég ætla að klifra og er til í að söffer labb/keyrslu.

    Sissi Softari

    #50253
    0304724629
    Member

    Mér heyrist að mönnum standi stuggur af labbinu inn Eilífsdalinn og skal engan undra. Þó ekki séu margar ísleiðir sem vert er að klifra, alveg við veginn hér fyrir vestan, er samt nóg af ís til fjalla. Einnig nægur snjór ef menn eru á þeim buxunum.

    rok
    Ísafirði

    #50254
    1306795609
    Member

    Ég kem í grillið…(first thing first)

    #50255
    Anonymous
    Inactive

    Eru menn virkilega að setja fyrir sig svolítið labb eða hvað????
    Með fullri virðingu ROK þá vil ég mikið frekar labba inn Eilífsdalinn heldur en að keyra til Ísafjarðar.
    Olli

    #50256
    1704704009
    Member

    Hringdi í Aðalstein í Eilífsdal, Gísla á Meðalfelli og Heimi í stjórn sumarbústaðafélagsins. Aðalsteinn vísaði á Gísla sem bauðst til að koma og hitta okkur við bæinn Eilífsdal á laugardagsmorgun og sýna okkur stystu ökuleiðina inn dalinn. Hann sagði nýja brú vera komna upp og keðjudraslið á ekki að hindra för. Auk þess bauðst hann til að benda á auðveldasta aðgengið að Valshamri í leiðinni.

    Þá er það bara hittingur við Select kl. 7:55 á laugardag. Geri það hér með að tillögu minni.

    #50257
    Sissi
    Moderator

    Klassi – hver ætlar að bjóða grill- / og bjórdrykkjuaðstöðu um kveldið? Við verðum nú að hafa smá partý líka. Þá er þetta orðið festival.

    Svo væri jafnvel hægt (skýjaborgir) að athuga hvort einhver hafi aðgang að pródjektor, brenna nokkrar myndir á disk og sýna yfir matnum.

    Eða ekki ;)

    Siz

    #50258
    2003654379
    Member

    Keyrði inn Eilífsdalinn í morgun án vandræða upp að hlíðinni.Samkvæmt minni takmörkuðu þekkingu er nægur ís þarna og stefnum við 2 félagar að því að fara á Laugardaginn og spreyta okkur í ísnum.

    Kveðja Viðar

    #50259
    1704704009
    Member

    Olli sagðist ætla að hýsa samkvæmið. Þetta er allt að smella saman.

    Ef stjórnin samþykkir væri hægt að þjóðnýta afgangsbjór sem keyptur var fyrir jólaglögg 2004 og athuga hvort einhver reisi ágreining ef hlandinu verði sturtað niður um vélindað á hlutaðeigandi.

    #50260
    Anonymous
    Inactive

    Nú vil ég brýna fyrir félögum sem hafa í hyggju að keyra þarna inn að bera virðingu fyrir landinu og ekki trundast yfir viðkvæman jarðveg þar sem jörð er ekki frosin þarna núna. Það á að vera hægt að keyra án vandræða langleiðina inn en með smá (ó)lægni er hægt að skemma talsvert þarna. Slæm umgengni getur orðið til þess að torvelt verði að komast þarna inn með hóp bíla næst.
    Olli

    #50261
    2003654379
    Member

    Jörðin er vel frosin alla leið inn úr og ef ekki hlýnar fram að helgi er engin hætta á jarðvegsskemmdum.

    Viðar

    #50262
    2502614709
    Participant

    Þetta lítur allt vel út – nema bjórinn hjá formanninum er grunsamlega aldraður eitthvað- greinilega tilvalið að losna við gamla bruggið og fleira úr geymslunni núna.
    Kannski maður sníki far frá Select á laugardaginn.

    #50263
    0311783479
    Member

    Olli og aðrar kempur hvað haldi þið með Haukadalinn er e-ð þar?

    Annars þá iða ég af spenningi þar sem vetur-konungur er nánast farinn héðan.

    Sjáumst á Select á lau.

    Halli

    #50264
    Arnar Jónsson
    Participant

    Vitiði ekki strákar hvort eitthvað plás sé laust í fjalla burra ef þeim málum næst ekki að redda fyrir laugadaginn ?

    #50265
    2008774899
    Member

    Hurðurðu burðurðu burruburru, ahhhhh!

    #50266
    Anonymous
    Inactive

    Arnar það hlýtur að vera pláss laust hjá einhverjum, við gætum haft eitt pláss í okkar jeppa.
    Halli ég útiloka alls ekki með Haukadalinn, en það hefur verið ansi heitt undanfarið svo það er möguleiki á að lítill ís sé þar. Það kæmi mér samt ekkert á óvar ef ís væri þar. Þar sem við erum ekki vissir um slíkt er ekki ráðlagt að stefna þangað fullt af fólki.
    Kveðja Olli

Viewing 20 posts - 1 through 20 (of 20 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.