Fatnaður – þriggja laga eða eitthvað allt annað?

Home Forums Umræður Klettaklifur Fatnaður – þriggja laga eða eitthvað allt annað?

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #47251
    1908803629
    Participant

    Nú stendur til að endurnýja úlpu og jafnvel meiri fatnað fyrir komandi ævintýri á fjöllum og það brýst svolítið í mér hvað á að velja. Helst velti ég því fyrir mér hvort að maður eigi að halda sig við “hefðbundna” þriggja laga systemið sem flestir virðast nota á Íslandi í dag eða hvort maður ætti að prófa fatnað eins og Buffalo, sem gefur sk** í þriggja laga lögmálið (http://www.buffalosystems.co.uk/). Auk þess velti ég því fyrir mér hvaða þriggja laga útfærsla er best

    Hvað segja reyndir og óreyndir: Hafa einhverjir verið að nota önnur “kerfi” en þriggja laga og þá hvernig? Hvaða þriggja laga merki/blanda er að virka best? Hafa menn annars einhverja skoðun um hvað er besti útivistarfatnaðurinn í dag?

    Ég mun halda í semi erfitt fjallabrölt í ölpunum í sumar og því ekki verra að vanda valið. Allar tillögur og þankagangur væri vel þeginn.

    #55397
    2006753399
    Member

    Þetta er allt sama tóbakið… heima er górullinn king vegna úrkomunnar, í ölpunum kemstu upp með minni vatnsheldni og getur tekið meira “soft-shell” dót fyrir klifur í hæð.

    Maður er samt alltaf smeykur að skilja við sig skelina enda alinn upp í þessu veðravíti hérna heima, þeim fjölgar samt sem eru t.d. nánast hættir að nota górullar-brækur en taka stakkinn með.

    Ef þú átt mujos mikinn pjening þá er komið mikið af vönduðum “soft-shells” sem virka nánast eins og górullin, Patagonia, Mammut, ArcTeryx ofl.ofl.

    Góðar stundir!
    -R

    #55398
    0703784699
    Member

    Þetta snýst allt um útlitið, keyptu það sem kemur best út á mynd punktur

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.