Eyjafjöllin.

Home Forums Umræður Ís- og alpaklifur Eyjafjöllin.

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #44779
    Páll Sveinsson
    Participant

    Ég og Olli fórum í Eyjaföllin í dag.
    Reyndum við nýa leið en við gugnuðum vegna íshruns.
    Ég vildi samt endilega fá að klifra þannig að við brunuðum í Paradísaheimt og vorum komnir þangað um tvö leitið.
    Í stuttu máli þá fórum við skoruna í Paradísarheimt í hreint frábærum aðstæðum. Skrítið að byrja svona seint því að það er mælt með að byrja snemma til að losna við hrun vegna sólbráðar. Sluppum niður fyrir myrkur.

    Allar leiðirnar í Paradísarheimt eru í góðum aðstæðum og skoran í fimmstjörnu aðstæðum.

    kv.
    Palli

    #52356
    2806763069
    Member

    Góðir, hefði átt á rýna betur þegar ég fór þarna framhjá í dag. Tók reyndar mynd og tékka hvort ég finn ykkur á henni við tækifæri.

    Verð á ferðinni aftur í fyrramálið, þannig að þegar þið sjáið traktor í dulagerfi (landróver) hægja á sér þá er um að gera að brosa og veifa öllum skönkum til að komast á myndflöguna mína.

    Góða skemmtun, en hvernig er svosem annað hægt á svona dögum?!

Viewing 2 posts - 1 through 2 (of 2 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.