Hvað hefur maður betra að gera á miðvikudagskvöldum, því dagskráin í imbanum er heldur dræm, en að skella sér í hressandi kvöldgöngu.Stefnan var tekin á Þverfellshorn og dró ég félaga minn Daníel með.Labbið var skemmtilegt, þrátt fyrir að það þurfti að vaða snjó upp að hnjám öðru hverju.
Þeir sem hyggjast leggja leið sína upp Esjuna næstu daga, þá myndi það ekki tefja fyrir að kippa með sér broddunum (allavega öxi), því síðasta brekkan er ís og hjarn til skiptis. Það væri síður skemmtilegt að lenda í þeirri rennibraut og enda niðri á þjóðvegi 1…allur í henglum
Robbi