Eins og áður hefur komið fram er ferðin afmælisferð og ræður feraval því að fyrsta ferð klúbbsins var einmitt á Skessuhorn. Þá um árið var það enginn annar en Helgi Ben Þáverandi varaformaður klúbbsins, sem leiddi hópinn.
Rætt hefur verið við Helga um að leiða afmælisferðina og hefur hann tekið vel í það.
Þá eru komnar 3 óhrekjanlegar ástæður fyrir að fara með:
1. Skemmtilegt fjall
2. Frábær fararstjóri
3. mynd af sér í umtalaðasta ársrit klúbbsins í fjölda ára
Nú er ekki hægt að sitja heima með góða samvisku.
Kv. Smári