Gaman að sjá að það er kominn ný dagskrá fyrir sumarstarf klúbbsins. Sérstaklega er það gleðilegt að klúbburinn hyggst hlúa að ungliðunum og þeim minnihlutahóp sem kvennklifrarar eru.
Það er samt tvennt sem mér finnst vanta, það er dagskráin á ensku inn á vefinn.
Það er orðið nokkuð algengt að fólk sem ekki talar eða skilur íslensku kemur niður í klifurhús og spyr um starfsemi klúbbsins. Oftast hefur þetta fólk þegar kynnt sér mjög góðan enskan hluta heimasíðunnar en vantar bara upplýsingar um fyrirlyggjandi dagskrárliði.
Það ætti ekki að vera stórmál fyrir dagskrárnefndina að snara pistlinum yfir á ensku þannig að það lendi ekki allt á Helga.
Hinn hlutin sem vantar er hið árlega og bráðnauðsynlega klettaklifurnámskeið.
kv. Ívar afskiptasami