Sérdeilis glæsilegur dagur á fjöllum í dag. Spáir enn betur á morgun og margt hægt að gera. T.d. var lögð glæsileg göngubraut í Bláfjöllum þrátt fyrir væl um snjóleysi í fjölmiðlum enda nægur snjór.
Takk fyrir að deila þessu með okkur Árni.
Þetta var frábær skíðadagur í dag. Heiðskírt, svo til logn og -6°C. Það sem meira var: ENGINN annar á skíðum! Hvar er fólkið?
Skrapp síðdegis á svæðið norður af Bláfjöllum og sunnan við Jósepsdal þ.e. Draumadal (Draumadalir?) og svæðið þar í kring. Ótrúlega skemmtilegt landslag og snjóþungt svæði. Eitthvað sem vert er að skoða og skíða.