Nú er búið að stilla upp beinagrindinni að metnaðarfullri dagskrá Ísalp fram á mitt sumar. Allir ættu að geta fundið þarna hluti við hæfi og vonandi að veður og aðrar aðstæður verði hagstæðar.
Ef þér finnst vanta eitthvað í dagskrána eða ert með breytingatillögur þá sendu póst á stjorn@isalp.is.
Umræðusíðurnar eru líka tilvalinn vettvangur til að skiptast á skoðunum varðandi dagskrána.
Kveðja
Halldór formaður