Ég fékk vinsamlega fyrirspurn um hvort ég gæti ekki sett umræður, greinar og myndir aftur inn á Ísalp-vefinn. Ekkert mál, hérna er umræðusíða Ísalp og vísun á greinarnar er að finna í efnisyfirlitinu. Þeim er raðað eftir dagsetningu. Bráðum verður þessari síðu síðan skipt út fyrir nýja og glæsilega vefsíðu nýju vefnefndarinnar.
Nýja vefnefndin vinnur nú hörðum höndum að nýju síðunni. Í henni eru Halli Guðmunds, Stefán Örn og Óli Raggi. Samkvæmt staðfestum fregnum (sjá veggjalys.blogspot.com 29.9.03) lenti Stefán þó reyndar í alvarlegu “óhappi” og er því óvíst hvort hann geti unnið við tölvu. Á móti kemur að samkvæmt sömu fregnum hefur Halli misst vinnuna vegna ósæmilegrar hegðunar og getur því einbeitt sér að fullu að nýju vefnum.
með kveðju
Helgi Borg