- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
24. January, 2005 at 22:24 #47143Jón HaukurParticipant
Átti leið um Botnsúlur á laugardaginn, þar fóru mikinn félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar í viðgerðum á Bratta. Ég setti inn nokkrar myndir af framkvæmdunum inn á síður félaga. Ég held að við ættum öll að geta þakkað þeim fyrir framtakssemina.
Fór síðan í Glymsgil á sunnudaginn. Það er svo sem ekki frásögum færandi, nema að þar urðum við Ingó vitni að því stærsta íshruni sem ég hef séð í návígi. Myndir af herlegheitunum eru á sömu síðu, en það var eitthvað vesen með stóru myndirnar, en þumbneilarnir sýna hrunið samt sem áður.
jh
24. January, 2005 at 23:23 #49372Páll SveinssonParticipantDjjjjöfullin og dauðin.
Þið eruð ekki feigir félagar.Palli
25. January, 2005 at 09:08 #49373Björgvin HilmarssonParticipantOk, ég er með fiðring í maganaum. Þetta er ekkert grín! Til hamingju með að vera á lífi félagar.
Retro
25. January, 2005 at 10:28 #49374ÓlafurParticipantSvei…ég ætti kannski að fara að hlusta á tengdamömmu áður en það er of seint.
ó
25. January, 2005 at 10:32 #49375KarlParticipant-eins og Aðalríkur Alsgáði hefur margsagt þá er aðal ógnvaldurinn að himininn hrynji yfir menn….
Fyrstu fregnir mínar af isþiljunum í Kaldakinn var einmitt af hamförunum þegar þilin hrynja….
Ég man ekki betur Jónki, -en þegar við vorum á Franska ísfestivalinu um árið hafi orðið e-h aföll þegar foss hrundi með klifrara.Það er til marks um hvað Jónki er smávaxinn, að þó stór hluti þilsins hrynji niður….-þá hittir það ekki á Jónka!…
25. January, 2005 at 12:24 #49376ABParticipantBrids heima hjá mér í kvöld.
Ísklifur er úti, brids, snóker, og skák er inni.
Svei.
AB
25. January, 2005 at 12:47 #493771110734499Membershit !
kv. d
25. January, 2005 at 13:14 #49378SissiModeratorÖss!
Andri – þú gleymdir stífri bjórdrykkju sem er klárlega hobbí of choice í snjó-/ísþunglyndi, sérstaklega þar sem þú þarft að fara að byggja upp öflugri magavöðva!
Siz
25. January, 2005 at 13:14 #493792806763069MemberÞað er ekkert minna! Svo bregðast kross tré sem önnur tré!
Annars flott hjá Hafnfirðingunum! Gerið hafnarfjarðarsveitina að heiðursfélaga og sendið henni úrval ársrita og leiðarvísa.
Gvöð minn góður, þvílík ótíð!
25. January, 2005 at 13:48 #49380Siggi TommiParticipantFyrst katastrófusögurnar eru farnar að fjúka þá læt ég okkar helgarsögu fjúka í leiðinni.
Við Haukadalsfararnir upplifðum einnig heldur óskemmtilega stund um helgina.
Vorum komnir 2/3 upp Trommarann þegar ógurlegur dynkur heyrist einhvers staðar frá og virtist hann koma úr okkar eigin fossi. Ég var að klifra en Robbi þóttist finna jarðskjálfta upp á 6 á Richter þegar þetta gerðist (ýki það nú reyndar) og fannst hann einnig sjá þversprungu sér í ennishæð gleikka um einhverja millimetra (en það gæti nú verið ímyndun…).
Sissi og co hinum megin í gilinu heyrðu lætin mjög greinilega.
Þó var ekki einu sinni yfir 0°C hjá okkur. -1°C eða svo ef ég man rétt.
Mjög hressandi að heyra fossinn sinn sunka niður án þess að sjá nein ummerki um hrun…Jibbíkæjei!
25. January, 2005 at 14:26 #493810902703629Member…nú, svo er hægt að skella sér á dansgólfið!
Hér eru nokkrar línur sem eiga vel við atburði helgarinnar og þá er ekkert eftir annað en að æfa Travolta-sveifluna….
…
Ah, ha, ha, ha, stayin’ alive, stayin’ alive.
Ah, ha, ha, ha, stayin’ alive, stayin’ alive.
Ah-ha, ha, ha, stayin’ alive, stayin’ alive.
Ah, ha, ha, ha, stayin’ alive.Step to the side
You’d better run and hide
Move to the side Ev’rybody wants to stay alive.
…25. January, 2005 at 16:39 #49382Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantSiggi, þú þarft að vera með diktaphone til að taka upp öll þessi óhljóð sem þú heyrir, svo eftir nokkur ár geturðu mixað þau saman og gefið út disk sem héti t.d; Shit in our pants eða Time to bail. Ég tek eitt stykki!
26. January, 2005 at 09:27 #493832806763069MemberSkráðu mig líka niður fyrir einu eintaki! Snild!
Ekki vitlaust að vinna þetta með Andra, það eru allar líkur á að hann verði oft nálægt þegar eitthvað sniðugt gerist.26. January, 2005 at 11:45 #49384Siggi TommiParticipantMúahahah
26. January, 2005 at 13:22 #49385ABParticipantRétt Ívar. Siggi hafðu samband, ég er lunkinn í að þefa uppi vandræðin, hrun, snjóflóð eða bílveltur, just name it.
Kveðja,
AB
26. January, 2005 at 14:55 #49386RobbiParticipantMér skilst víst að hægt sé að fá áhættutryggingu fyrir okkur vitleysingana ef við skyldum nú verða fyrir ísfossi eða hoppa óvart fram af kletti. Fyrir einungis 60000 spírur á ári…gjafaverð.
Kanski maður ætti að skoðaða, og já eitt eintak fyrir mig.
RH27. January, 2005 at 11:24 #493871210853809Memberég athugaði einu sinnni hjá einhverjum tryggingasölumanni svona áhættutryggingu og þá kostaði þetta töluvert meira en 60.000 að mig minnir um 10.000 á mánuði, en kannski er þetta eitthvað ódýrara ….. bara athuga að öll möguleg og ómöguleg slys séu innifalinn.
Jóseppe
27. January, 2005 at 12:07 #49388SissiModeratorÉg er með slysatryggingu sem gildir fyrir allt nema keppni, æfingar fyrir keppni og ísklifur. Kostar einhvern 14.000 kall á ári. Árgjaldið breytist í mánaðargjald ef maður vill hafa ísklifur eða fallhlífarstökk memm einhverra hluta vegna. Held að þetta sé bara fáfræði. Rökræddi þetta við sölufólkið þangað til það var orðið hel-pirrað á mér.
Ef einhver hélt að það væri einhver sveigjanleiki hjá starfsfólki í tryggingaþjónustu þá er það rangt.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.