Skellti mér, ásamt Orra og Filipusi, í Botnsúlur á laugardaginn. Fullt fullt af snjó frekar þungur á leiðinni að syðstu súlu en léttist mikið eins og við mátti búast þegar ofar dró. Leiðin upp tók töluverðan tíma vegna snjómagns en þá skartaði umhverfið sínu fegursta með sól og stafalogni. Þegar upp var komið dró ský fyrir sólu (týpískt) og við renndum okkur niður í frábæru færi en blindu skyggni. ferðin tók ca 5,5 tíma úr bíl í bíl.
kv. Smári