Við verðum að fresta ferðinni á morgun vegna veðurs. Vissulega átti þetta að vera slarkferð en það er fyrirsjáanlegt að það verði stormur í Botnssúlum á morgun og það er of langt gengið að standa fyrir ferð þangað við slíkar aðstæður -ekki síst þar sem skálinn er lélegur.
Hins vegar er sunnudagurinn ennþá inni í myndinni. Vonandi verður hægt að komast í dagstúr í Botnssúlurnar þá. Nánari upplýs. á morgun.