Home › Forums › Umræður › Skíði og bretti › Bindingar óskast
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
28. November, 2003 at 14:57 #466110310783509Member
Mig vantar annað hvort Rottefella Riva2 eða Red chilly telemark bindingar A.S.A.P notað eða nýtt hafið samband við mig í síma 8496463 eða e-mail: einaris@mi.is
Sjáumst
Einar Ísfeld28. November, 2003 at 15:31 #48209ÓlafurParticipantJá verið fljót að svara…bláfjöllin opna á morgun.
órh
28. November, 2003 at 16:36 #482100311783479Memberég gæti selt þér “dýrindis” SkyHoy bindingar sem ég keypti fyrsta veturinn sem Nanoq var opin. Þetta eru “fyrirtaksgræjur” þungar og góðar til að “auðvelda” uppgöngu, engin fjandans hælhækkun enda er slíkt bara fyrir eymingja og dusilmenni. Þyngdin gulltryggir að nægur skriðþungi næst.
´
Ef áhugi er fyrir hendi þá býð ég framvirkan samning á þessar bindingar með afhendingu 19.des.að öll gríni slepptu þá eru þetta verstu telemark bindingar sem framleiddar hafa verið.
-halli
28. November, 2003 at 22:34 #482110704685149MemberPrófaðu að hringja í Skíðaþjónustuna á Akureyri. Ég fann þar fyrir ca 2 árum Chilly á mjög góðu verði. Það voru ýmsar gerðir af bindingum sem ég sá hjá honum og ef mig minnið svíkur mig ekki þá voru þar einhverjar Rottafella-bindingar til viðbótar.
Skíðaþjónustan hefur stutt Telemarkhelgina á Akureyri síðustu ár og gefið glæsilega vinninga, símanúmerið þar er: 4621713.
Það er opið á laugardögum og ef þeir eiga bindingar til, dílaðu við þá að senda þér þær suður með kaffivélinni.
kveðja
Bassi úr snjóleysinu…29. November, 2003 at 08:21 #482120405614209ParticipantHaaaaa..!!!
Er Skíðaþjónustan líka að gera við kaffivélar?
Mér hefur alltaf þótt Akureyrisingar undarlegir en nú tekur steininn úr plómunni. Pylsur með rauðkáli – sundlaug í brekku – enginn snjór í skíðabrekkum o.s.frv.
Kveðja
Halldór formaður30. November, 2003 at 17:35 #482130310783509MemberTakk fyrir hjálpina félagar það er búið að redda málinu… áfram ísalp.is og Co
Einar Ísfeld
30. November, 2003 at 20:42 #482140704685149MemberSæll,
Fékkstu bindingarnar hjá þeim í Skíðaþjónustunni?
kveðja
Bassi -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.