Hæ
Ég bendi áhugasömum á að búið er að ákveða staðsetningu fyrir ísklifurfestivalið (sjá dagskrá). Í ár stefnum við á Arnarfjörðinn, enda hafa heimildarmenn klúbbsins sent þaðan myndir sem lofa góðu.
Boðið verður upp á gistingu í leiguíbúðum á Bíldudal, ég hvet alla sem ætla að mæta til að skrá sig sem fyrst, það einfaldar skipulaggningu mjög.
Ég þakka okkar mönnum fyrir vestan, þeim Eiríki og Rúnari kærlega fyrir hjálpina.
Allez!
Skabbi