Sýningar í Smárabíó hefjast kl. 20.00 bæði kvöldin. Það verður langt hlé.
Nú er loksins komið á hreint hvernig það verður með Íslensku myndirnar á Banff.
Á mánudeginum verður mynd framleidd af frönsku fyrirtæki, Focus, um skíðamennsku á Tröllaskaga. Jökull Bergmann gædaði þá um svæðið. Flott mynd, 14 mínútur.
Á þriðjudeginum verður myndin frá Telemarkfestivali Ísalp árið 2000 í Öræfum. Ingvar Þórisson er að klippa myndina saman og stefnir að því að hún verði 8 mínútur (vonandi lengri). Þetta verður stórfín mynd.
Kveðja
Halldór formaður