- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
26. April, 2010 at 09:42 #47313
Björgvin Hilmarsson
ParticipantJæja, geri ráð fyrir að það hafi ekki farið fram hjá neinum að Banff fjallamyndahátíðin er í kvöld og annaðkvöld. Vona að það sé gríðarlegur stemmari í gangi og allir að fara mæta? Eins og í fyrra þá verður sjoppa á staðnum svo engin þarf að lenda í sykurfalli meðan á sýningum stendur.
Er einhvern mynd/myndir sem fólk bíður sérstaklega spennt yfir? Lát heyra…
27. April, 2010 at 09:44 #55400Björk
ParticipantFlottar myndir og skemmtilegt kvöld.
Mér fannst fyrsta myndin skemmtilegust, fyndnir gaurar og síðan klettaklifurmyndirnar, þetta sólóklifur!Ég tók samt eftir því að það kom held ég ekki einn kvenmaður fram í öllum þessum myndum. Eru engar konur að gera eitthvað töff sem kemst á Banff?
Hlakka til að sjá myndirnar í kvöld.
27. April, 2010 at 10:23 #554011108755689
MemberJá, flottar myndir. Frakkarnir voru bestir fannst mér. Prima dæmi um góðan móral.
27. April, 2010 at 10:25 #55402Arnar Jónsson
ParticipantÍ kvöld mun kvenhetja láta ljós sitt skína í hinni áhugaverðu Rowing the Atlantic þar sem breski súper kvenmaðurinn Roz Savage fer alveg alein í róðra bát þvert yfir Atlantshafið í yfir 3000 mílna róðri.
Svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af skorti á kvennhetjum þetta árið á Banff Björk mín, þó vissulega mættu þær vera fleirri
Sjáumst öll í kvöld!
Kv.
Arnar28. April, 2010 at 09:42 #55403Gummi St
ParticipantJæja, hvernig fannst ykkur svo Banff hátíðin í ár ??!!
Við vitum að Björk er nú orðin himinlifandi eftir að hafa séð skvísu gera svakalegan hlut.
En hvað stóð uppúr? Var það mega-rennibrautin, sóló klifrið, Will Gadd eða skíðaklámið í lokin?
Gaman væri að heyra frá ykkur
28. April, 2010 at 10:29 #55404Björk
Participantjá það kom þarna ein kona sem skildi við kallinn sinn og fór að róa, rói – rói. Gott að vita að konur á Banff eru að gera eitthvað meira en að halda í spotta og hvetja gaurana áfram
Mér fannst Azazel, Alone on the wall og Re:Session skemmtilegastar.
28. April, 2010 at 10:42 #554050808794749
MemberMér fannst Will Gadd frekar kjánalegur. Hann má alveg snúa sér að einhverju öðru en að fjöldaframleiða ísklifurmyndir með ofleik.
Mér fannst solo-klifrið, Alone on the Wall, alveg rosaleg.
Eins og mér finnst einhjól kjánaleg þá var myndin frekar fyndið. Á sama tíma og hún var sýnd kom í fréttum rúv viðtal við japana sem er að hjóla í kringum landið á einhjóli!!Þó að róðramyndin hafi ekki verið æsileg þá er það samt alveg fáránlegt sem þessi kona gerði. Dísús!
28. April, 2010 at 14:17 #554062006753399
MemberImpossible climb stendur uppúr í seinni hálfleik, górilluklifur af bestu sort urr urr!
Tek undir að Gadd var frekar tilgerðarlegur, undarlegt vídjó í meira lagi.
Corny-muslibar var svo sigurvegari kvöldsins, wtf!?takk fyrir mig!
29. April, 2010 at 08:41 #55409Björgvin Hilmarsson
ParticipantHonnold sólari vara að rokka verulega fyrra kvöldið, þvílíkur töffari! Lokamyndin seinna kvöldið, Re:Sessions skíðamyndin var svaðaleg, líklega besta skíðamynd sem maður hefur séð fyrr og síðar.
Það er annars magnað hvað áhuginn á Banff virðist vera orðinn mikill, troðfullt bæði kvöldin og frábær stemmari.
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.