- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
7. April, 2005 at 15:25 #452870704685149Member
Hvernig væri að fá smá dóma um seinna kvöldið á Banff?
Kalli fórstu ekki?
Gaman væri að fá skoðanir frá fleirum en KallaBassi
7. April, 2005 at 16:03 #496223008774949MemberSeinna kvöldið var snilldin ein.
Mun betri myndir en fyrra kvöldið og hávaðinn horfinn7. April, 2005 at 16:04 #496231704704009MemberMér fannst seinna kvöldið talsvert betra en það fyrra.
Myndir gærdagsins voru hver annarri betri. Ástralinn átti í manni hvert bein frá því hann birtist á tjaldinu og til enda og hundkvikindið gerði bara heilmikið fyrir myndina. Soul Purpose var hreinlega geggjuð og Sinners sömuleiðis. Útlimalausi klifrarinn var þrælfínn og ísklifurfestivalið í Ouray var flott.
Annars fannst mér Dætur Everest bara hin ágætasta mynd þótt skiptar skoðanir séu um hana.7. April, 2005 at 17:06 #49624KarlParticipantJú Bassi minn, -þú misstir af mikið meiru á seinna kvöldinu. Við hinir erum að sjálfsögðu rífandi ánægðir með það.
Klettaklifurmyndin var mun myndrænni og líflegri en á fyrra kvöldinu.
Skíðamyndir finnst mér alltaf skemmtilegri en myndir af hvítu vatni. Skíðamyndirnar voru ólíkar og athygli vert að öll atriðin í seinni myndini voru kláruð standandi en venjulega er sýnt groddalegt flug en síðan klipt við lendingu.
Það sem gerði ísklifurmyndina áhugaverða var hvernig klippt var saman hversu ólíkur stíll var á klifri þeirra tveggja sem komust upp.
Merkilegast finnst mér þó alltaf að menn klifra með fætur fyrir ofan hendur….Fatlafólið var helvíti magnað, -ég var reyndar búinn að átta mig á að helvítið væri fótalaust en að vera einnig handalaus í príli hlytur að vera nýung. -Ætli Özzur viti af þessu?
Ástralinn sem fór út að viðra hundinn var helvíti magnaður. Sem íslenskur jeppakarl hefði ég samt talið að stytta hefði mátt ferðalagið um nokkra daga með því að hafa “krúserinn” á stærri dekkjum og með víðari gaffla svo dekkin næðu að snúast í drullunni…
Drulludekk og gafflar í hjólamyndinni var hinsvegar ættað úr mótórdrifnum drullumöllurum en búið var að skipta mótórnum út fyrir pedala. Flott kvikmyndataka.
Mér hefur alltaf litist vel á að stunda hjólreiðar engöngu niður í móti…. Hef reyndar trú á að allnokkrir liggi eftir léttbæklaðir eftir þetta hraða reið innan um massíva trjáboli. -En hver hefur sagt að heiminum sé e-h missir af nokkrum Könum…?7. April, 2005 at 18:55 #49625Páll SveinssonParticipantÉg skemmti mér bara vel.
Ótrúlegt að horfa á einn kalla á labbi í 50 mín og leiðast ekki.
Nú skrepp ég í útilíf og endurnýa ísklifurgírinn. Minn er greinilega frá síðustu öld.kv.
Palli7. April, 2005 at 20:57 #496260704685149MemberGott að menn skemmtu sér vel.
Er bara aðeins að hlera.Bassi
9. April, 2005 at 11:58 #496270405614209ParticipantÍ heildina tókst Banff vel að ég tel og þeir sem heima sátu misstu af miklu.
Banff menn hafa verið að spyrja eftir myndum frá Íslandi og ég hef blákalt logið að þeim að ég viti til þess að einhverjir séu að vinna myndir. Er einhver með eitthvað í vinnslu?
Simon Yates var fjarska ánægður með dvölina og bað fyrir kveðju til allra. Sagði að hann kæmi aftur seinna.
Kveðja
Halldór -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.