Það er alveg óhætt að segja að aðstæður eru hreint frábærar í Hlíðarfjalli. Ér er að sjálfsögðu að tala um unnar og troðnar brautir því lítið er af púðrinu í augnablikinu.
Var mættur uppeftir snemma í morgun í glampandi sól. Það snjóaði aðeins í fyrrinótt sem gerði brautirnar hreint frábærar. Auk þess er framleiddur snjór þegar aðstæður leyfa.
Munið því eftir sólarvörninni … sólgleraugunum … speglalinsunni í skíðagleraugun og kakóinu!
Sjáumst á föstudaginn!
Kv.
Böbbi