aðstæður á suðurlandi

Home Forums Umræður Skíði og bretti aðstæður á suðurlandi

  • This topic is empty.
  • Author
    Posts
  • #45552
    3008774949
    Member

    Veit einhver hvernig snjóalög eru í Tindfjöllum eða á Eyjafjallajökli??

    #50887
    Anonymous
    Inactive

    Þegar ég var í Tindfjöllum (Ými og Ýmu) 1. janúar var eingöngu um mjög þunna mjöll yfir öllu en það hefur talsvert snjóað síðan.
    Olli

    #50888
    0801667969
    Member

    Hlýtur nú að vera mökkur af snjó þegar komið er upp á Jökul. Var ekki eitthvað á Útiveruvefnum um gríðarlegt púður á Mýrdalsjökli s.l. helgi. Annars búið að vera skemmtilegt púður í Bláfjöllum í dag og víða hörku fínt skíðafæri (síst neðst í Kóngsgilinu). Um kaffileytið var reyndar komið mikið kóf. Allt að smella saman. Fyrst það er snjór í Bláfjöllum þá hlýtur að vera snjór á Suðurjöklasvæðinu.

    Kv. Árni Alf.

    #50889
    2401754289
    Member

    Var með tvo á Snæfellsjökli í gær. Held að allur snjór á nesinu hafi skafið í leiðina upp og er hægt að skíða alveg niður í 200m hæð og kannski lægra fyrir þá sem nenna að vaxa skíðin eftir hverja ferð!!!
    Bullandi snjóflóðaaðstæður hlémegin í “landslags gildrum” og forðaðist ég allar stærri hlíðar sem voru í brattari hlutanum snúandi í suður áttirnar (ekki gleyma ýlinum, skófluni og stönginni ef þið farið að leika í snjónum!)
    Skíðaaðstæður fínar en vindbarni snjórinn er frekar stífur sum staðar….íslenskt púður sem sagt
    -7 til -13.3°C, mikið af hljóðinu WHOMPF (kann ekki íslensku þýðinguna á þessu orði) sem er vísir á MJÖG óstöðugt lag í snjónum…skoðaði það ekki vel en það var yfir leitt 5-10sm undir yfirborðinu.

    Langloka en það er næstum glæpur að tilkynna ekki aðstæður þegar eitthvað er í gangi.

    Einhver tilkynti bílinn minn líka til lögreglu sem ætlaði svo að senda björgunarsveit á svæðið…kannski góð regla að setja miða í framrúðuna með smá betu og kannski símanúmerum (þínu og einhvers sem veit hvar þú ert og hvað þú ert að gera)

Viewing 4 posts - 1 through 4 (of 4 total)
  • You must be logged in to reply to this topic.