Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Aðstæður
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
3. March, 2006 at 13:17 #46298SissiModerator
Hefur einhver farið í bíltúr? Hvað halda menn með aðstæður um helgina hérna á SV horninu?
Siz
3. March, 2006 at 13:40 #50350AnonymousInactiveVeit hreinlega ekki en það ætti nú að vera kominn svolítill ís í Múlafjallið og Flugugilið.
Endilega ef einhver fer eitthvað þá um að gera að láta vita.
Olli3. March, 2006 at 14:20 #50351ABParticipantVið Helgi Hall vorum að koma úr Kistufellinu þar sem við fórum upp Kistufellshornið. Leiðin er í kjöraðstæðum, harðpakkaður snjór og góður ís. Öll gil í Esjunni þar sem á annað borð er snjór, eru því góður kostur. Það fraus nánast undan okkur á toppnum enda gríðarleg vindkæling, en þetta fór betur en á horfðist, þökk sé forláta Windstopper nærbuxum.
Það var sjónarmunur á ísnum í Búahömrum frá því fyrr í morgun, þar er allt að vaxa.
En þó má gera ráð fyrir, þar sem það hefur verið úrkomulaust í marga daga, að ísinn sé á mörgum stöðum frekar lítill þrátt fyrir kuldann.Kveðja,
AB3. March, 2006 at 17:34 #503522806763069MemberHvað er annars að frétta af viðsnúnu landnámi íslenskra víkinga í Noreigi?
3. March, 2006 at 18:04 #50353SissiModeratorÞeir voru í góðu geimi í gær, búnir að klifra helling. 9 leiðir var einhver kominn með en Freyzandi ferskur og Robertino, barnastarnan góðkunna, með meira – enda komu þeir fyrr út.
Menn voru í magnþrungnum rökræðum um tilurð drykkjarins bjórs í gær, og sáu ástæðu til að hafa samband við undirritaðan, til að taka af öll tvímæli. (Hægt er að finna heimildir um tilvist bjórs í Mesópótamíu og Egyptalandi 5.000 ár f.kr.)
Lucky sons of …
Siz
3. March, 2006 at 18:21 #50354Björgvin HilmarssonParticipantJá það ku víst vera gaman þarna í Rjukan. En það er örugglega bara bull…
En úr því að minnst er á bjór þá vil ég benda á Bjórbokina hans Freysa snillings (ekki Freyzandi þó). Hann veit allt um bjór.
Tékkið á http://www.bjorbok.net
4. March, 2006 at 18:59 #50355SissiModeratorVið Eiríkur Gísla fórum í Stíganda, fjölmennt þar því Viðar og Gísli voru spottakorn á undan okkur, og varð úr hið besta sósíal klifur. Skabbi og Bjöggi fóru í Rísanda. Báðar leiðir fínar, frekar þunnt efst í Rísanda reyndar og blautt.
Eitthvað meira er nú hægt að gera þarna í Múlafjalli, Ýringur leit ágætlega út í Brynjudal, Óríón er ekki í aðstæðum. Eilífsdalur er feitari sýndist okkur en fyrir 2 vikum, Himmi og Bjarni ætluðu þangað.
Nóg af ís til að eiga góðan dag, og ekki skemmdi veðrið fyrir.
“Góður dagur á fjöllum” = jamm.
Siz
6. March, 2006 at 10:02 #50356SissiModeratorFórum aftur af stað í bjartsýniskasti, nú í leit að road-side klifri. Grafarfoss var á hraðri niðurleið, hrundi stanslaust, og auk þess ekki frosinn saman.
Renndum inn í Kjós með litlar væntingar en rákum svo augun í fína línu nálægt Efri-Hálsi. Þetta var mikið stuð, tvö 10-15 metra höft, brölt upp gil sem opnast í flotta skál með nokkrum klifurleiðum. Skálin heitir Kór samkvæmt bóndanum.
Þar uppi völdum við okkur skemmtilega 3° 70 metra línu, í algjörum eðal plasma-ís, sem gaf ávallt bomber festu í fyrsta höggi. Eðal klifur. Samkvæmt grein eftir Ara Hrausta úr ársritinu ’85 hét leiðin Lekandi (ömurlegt nafn) en í leiðarvísi fyrir Hvalfjörð og Kjós frá ’90 var búið að breyta því, í hvað man ég ekki.
Bóndinn sagði að enginn hefði komið þarna í vetur, og yfirleitt bara kanar síðustu árin. Þetta er stutt frá bænum, lítið labb og gott klifur.
Siz
6. March, 2006 at 14:55 #503571306795609MemberSkíðafæri og veður á Heklu á sunnudag var eins og gerist best.
6. March, 2006 at 19:40 #50358Ágúst Þór GunnlaugssonParticipantÉg og Daði nokkur mættum með gírinn í skólann og spóluðum af stað um leið og bjalla hringdi út. Þar sem Sissi hafði lofað Kjósina svo mikið var stefnan tekin þangað. Fórum sama foss uppúr Kór og Sissi og félagar. Fossinn var í góðum aðstæðum nema eitt haftið var skelfilega blautt og morkinn ís svo axirnar héldust ekki inni. En með smá drullustrompun og ævintýramennsku redduðum við okkur framhjá haftinu og þá tók við frábær ís uppá brún. Tóm hamingja.
ági
8. March, 2006 at 15:43 #50359SkabbiParticipantHæ
Hér gefur að líta myndir frá Múlafjalli á laugardaginn síðastliðin og Kjós síðastliðin sunnudag:
http://www.vonlausa.org/gallery/view_album.php?set_albumName=album24
Þetta er náttúrulega ekkert nema hálfkák í samanburði við öldungadeildina…
Skabbi
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.