Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › Aðalfundur og myndasýning
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
8. March, 2004 at 13:24 #464312806763069Member
Minni á aðalfundinn í kvöld klukkan 20:00.
Venjuleg aðalfundarstörf og massífar reglugerðabreytingar.
Svo endar þetta allt með sögulegri myndasýningu frá BB king þar sem hann og félagar fara um USA í neon-grænun gamosíum. Þetta er söguleg myndasýning sem gekk í tvo mánuði fyrir fullu húsi í Háskólabíó á því herrans ári 1991 (já það var búið að finna upp klifur þá og ok ég er að ýkja lítillega með tvo mánuði).
Allir þeir sem eiga kort í klifurhúsinu eru atkvæðisbærir á aðalfund og eiga því að mæta. Til að tryggja góða mætingu verður húsið einfaldlega lokað fyrir klifur frá 20:00.
kaffi og kex á boðstólum.
fyrir hönd KFR (klifur félags Reykjavíkur)
Ívar F. Finnbogason
8. March, 2004 at 16:38 #48522Páll SveinssonParticipantÉg borgaði félagsgjald í KFR árum saman.(hét það kanski eittvað annað sem ég var félagi í?)
Er ég ekki rukkaður lengur?
Er ég þá ekki félagi þar sem ég á ekki kort og þar með ekki athvæðisbær?Hvernig fór ég að því að segja mig úr félaginu?
Palli
8. March, 2004 at 17:16 #485230311783479MemberÞað er líklega Sportklifurfélag Reykjavíkur sem þú átt við. Klifurfélag Reykjavíkur er rekstrarfélag Klifurhússins.
-kv.
halli8. March, 2004 at 17:27 #48524HrappurMemberPalli minn maður dettur sjálfkrafa úr klifurfélagi Reykjavíkur þegar menn hætta að komast 5.11
8. March, 2004 at 18:34 #48525ÓlafurParticipantSportklifurfélag Rvk. er ekki til lengur, heldur bara Klifurfélag Rvk sem rekur Klifurhúsið. Félagar í því (og þá þeir sem eru atkvæðisbærir) eru þeir sem eiga gilt kort í klifurhúsinu.
9. March, 2004 at 16:29 #485262806763069MemberSportkifurfélagið er reyndar enn til og sendir stöku sinnum út reikninga. Einhvern tíman verða þeir peningar teknir og keyptir boltar fyrir þá.
Stjórning sem síðast starfaði í því félagi hefur hinsvegar ekki hist í nokkurn tíma og hefur ekki í hyggju að hitast mikið í bráð.
Borgið bara það sem kemur inn um lúguna og spyrjið ekki of margra spurninga.
Spyrjið ekki hvað
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.