Home › Forums › Umræður › Almennt › Út að leika › Re: svar: Út að leika
1. February, 2008 at 10:51
#52340
0801667969
Member
Jú opnar kl. 14. Dúnúlpan sem ég keypti af Leifi á basarnum nú í haust svínvirkar. Hér er dúnalogn og 15 stiga frost. Svínhált og harf færi víðast utan brauta.
Sólarupprásin er hreint mögnuð hér upp á Fjalli. Útsýnið svíkur engan. Eyjafjallajökull og hinir Suðurjöklar blasa við. Vestmannaeyjar og Surtsey virðast í seilingarfjarlægð. Norðar er svo Hekla, Skjaldbreiður, Þóris-og Eiríksjökull. Snæfellsjökull kemur skýrar inn með kvöldinu. Það eru svona morgnar sem halda manni gangandi.
Kv. Árni Alf.