Brynjudalur er annar tveggja dala innst í Hvalfirði. Dalurinn afmarkast af Múlafjalli í norðri en í suðri af Þrándarstaðarfjalli og Suðurfjalli. Botnsúlur blasa svo við enda dalsins í austri. Hér hefur verið klifrað allan hringinn í dalnum en þó mest í norðurhlíð dalsins. Norðurhlíð dalsins er suðurhlíð Múlafjalls en því má þó ekki rugla saman við klifursvæðið Múlafjall en það er í norðurhlíð fjallsins og snýr út í Botnsdal.
Tveir leiðarvísar hafa verið gefnir út fyrir Brynjudal. Sá fyrri var skrifaður af Snævarri Guðmundssyni og birtist hann í ársriti Ísalp árið 1990. Hann fjallaði um Hvalfjörð og Kjós, þar á meðal Brynjudalinn en aðeins Flugugil og Ýring. Hinn leiðarvísirinn skrifuðu Sigurður Tómas Þórisson og Róbert Halldórsson og kom hann fyrst út í kringum 2010 en hefur verið uppfærður nokkrum sinnum síðan. Sá leiðarvísir nær aðeins yfir Nálaraugað og Skógræktina. Eins og stendur nær enginn leiðarvísir yfir öll svæði í dalnum.
Svæðin í Brynjudal, talin upp í réttsælis röð, eru:
D. Stórihjalli
C. Ingunnarstaðir
B. Nálaraugað
Þ. Þyrnigerðið
A. Skógrækt
H. Hestagil
S. Sunnan til í dalnum
Ý. Ýringur
F. Flugugil
D – Stórihjalli
Ysti sectorinn í Brynjudal, utan við Ingunnarstaði. Hér er búið að klifra eitthvað í gegnum tíðina en lítið sem ekkert hefur verið skráð.
D0 Baðöndin – WI 3
D1 Vegasaltið – WI 2
D2 Tokyo – WI 2+
D3 New York – WI 3
D4 Bahamas – WI 3
D5 Haraldsleið – WI 3
D6 Húsasundið – WI 2
D7 Kjötveisla – WI 3+
D8 Hawaiian – WI3+
D9 Minn tími er kominn – WI 4
C- Ingunnarstaðir
Allt vestan við svæði B í Byrynjudalsleiðavísinum og út að næsta hjalla. Hér er hellingur af léttum leiðum í WI 2 – 3 erfiðleikum. Eftir því sem nær dregur Nálaraugasectornum verða klettarnir brattari og nokkrar áhugaverðar línur er þar að finna. Hér á eftir að skrá nánast allt, svo að upplýsingar um klifur á þessum slóðum eru vel þegnar.
C1 Hvamm-Þórir – WI3
C2 Brynja – WI 3
C3 Refur hinn gamli – WI 3+
C4 Vatn og vellíðan – WI 5
C5
C6 Kvistlingur – WI 4
C7 Vör – WI 3+
C8 Með fjóra tigu nauta – WI- 3
B- Nálaraugað
Svæði B í Brynjudalsleiðavísi. Hér eru nokkrar klassískar leiðir eins og Snati og Nálaraugað en einnig eitthvað af nýrri leiðum eins og mixleiðin Svartur á leik.
B1. Árnaleið – WI 4
B2. Blindauga – WI 4+
B3. Þunnt milli þilja – WI 5+ R
B4. Svartur á leik – M 10
B5. Nálaraugað – WI 5
B6. Nálaraugað-afbrigði – M?
B7. Snati – WI 5+
Þ – Þyrnigerðið
Tiltölulega nýtt svæði með tilkomu mixleiðarinnar Þyrnigerðisins og svo Tollheimtumanns tízkunar. Þessar tvær mixleiðir skiptu Nálaraugasvæðinu upp í tvennt og núna tilheyra Kisi, Hvutti og Seppi Þyrnigerðinu.
- Þyrnigerðið – M 8+
- Tollheimtumaður tízkunar – M 6+
- Kisi – WI 2
- Hvutti – WI 3
- Seppi – WI 4
A – Skógrækt
Svæðið sem er merkt A í Brynjudalsleiðavísi
A1. Tappi – WI 3+
A2. Korkur – WI 3+
A3. Pilsner – WI 4+
A4. Kópavogsleiðin – WI 4
A5. Stout – WI 4+
A6. Porter – WI 4+
A7. Kútur – WI 3+
A8. Stútur – WI 3+
A9. Gambri – WI 3+
A10. Landi – WI 4
A11. Spíri – WI 4
H – Hestagil (Innst í dalnum)
Hestagil er ís og mixklifursvæði í botni Brynjudals og er alls ekki augljóst. Það bíður upp a margar leiðir sem flestar eru ófarnar enn sem komið er. Erfiðleikar eru frá WI3 upp í mjög erfiðar mixaðar leiðir. Jafnvel má segja að Hestagil sé fyrsta ,,íssportklifursvæðið” sem hér er að finna. Svæðið er mjög fallegt og fjölbreytilegt með mjög góðu bergi (eins og i Valshamri) og býður upp á erfiðar, ófarnar klettaklifurleiðir (5.11a-5.12b/c.). Rauðar línur á myndum eru ófarnar leiðir sem lofa góðu.
1. Ivan grimmi – WI 5+
2. Pétur mikli – WI 5
3. Hestafoss – WI 3
4. Pegasus – WI 5
5. Glófaxi – WI 5
S – Sunnan til í dalnum
Sunnan til í dalnum eru fínustu leiðir sem gætu dottið í aðstæður fyrr en aðrar leiðir í Brynjudal þar sem þær snúa í norður. Innarlega og ofarlega eru leiðirnar Óli, Pétur og Stubbur. Utar í dalnum má svo finna Þrándarstaðarfossa rétt á undan Húsagili þar sem Ýringur er. Fyrir ofan leiðirnar Óla, Pétur og Stubb eru síðan nokkur auðveld og stutt þil sem hafa ekki verið skráð.
- Óli – WI 5
- Pétur – WI 4+
- Stubbur WI 3
- Þrándastaðarfossar – WI 3
E – Þrándarstaðarfossar
- Neðri Þrándarstaðafoss – WI 3
- Marianne Mix – D8?
- Lína 1
- Lína 2
- Lína 3
- Lína 4
- Efri Þrándarstaðafoss – WI 4-5
- Beina bunan – WI 5
- Lína 7
- Lína 9
- Lína 9 (mjög stutt)
- Lína 10 (tvö höft)
Ý – Ýringur
Ýringur er stök leið í áberandi gili beint suður af Þrándarstöðum. Stutt aðkoma og sívinsæl leið.
- Ýringur – WI 5
F – Flugugil
Stórt og djúpt gil sem hefur alskonar leiðir að geyma. Frægust af þeim er Óríon.
Austan til í Flugugili:
22. Skrekkur – WI 4
23. Rás 1 – WI 3
24. Rás 2 – W 2
24a. Blómabörn – Gráða IV
25. Lensan – WI 3
26. Riddarinn – WI 3+
27. Snjórásin – WI 3
28. Óríon – WI 5
28a. Myoplex vöðvaflex – WI 5+
29. Litli Risinn – WI 3+
Vestantil í Flugugili:
Kertasnýkir – WI 5+
Rétt austan við Flugugil
Morgundögg – WI 4
Kvöldroði – WI 4+
Rétt vestan við Flugugil