Í kringum Kirkjubæjarklaustur er þó nokkuð af stökum leiðum og litlum sectorum. Svæðið Kirkjubæjarklaustur skiptist niður í
A – Fjaðrárgljúfur
Leiðirnar sem eru skráðar á Fjaðrárgljúfurssectorinn eru ekki í hinu eiginlega Fjaðrárgljúfri, heldur útfrá veginum sem liggur upp á Fjallabak.
Gljúfrið sjálft hefur samt einhverjar línur að geyma, hér er mynd af óklifruðum ís beint á móti bílastæðinu við Fjaðrárgljúfur.
B – Kirkjubæjarklaustur
Fyrstu leiðirnar sjást út um gluggann á bensínstöðinni, sennilega fleiri ef farið er innar í bæinn og í átt að Systrastapa.
- Ófarin
- Altarisgangan – WI 3
Þegar komið er inn á Klaustur er farið út úr hringtorginu á útgangi númer 2 og keyrt inn eftir þeim vegi. Fljótlega eftir Kirkjugólfið er farið yfir litla brú sem brúar Stjórná. Inni í Stjórnárgili eru leiðirnar Smjör er fjör WI 5 og Kapteinn Kirk M 6+. Þegar komið er fram yfir brúna ættu leiðirnar að blasa við í hömrunum
- N-18 – WI 5
- Hertoginn af Kolbeinsey – WI 4
- Golden Shower – M 5+
- Sexí – WI 6
- Miðmundarfoss – WI 4
C – Hörgsárgljúfur
Hörgsárgljúfur er um það bil 5km lengra en Kirkjubæjarklaustur. Aðkoman að gljúfrinu er mjög þægileg, nokkurra mínútna gangur frá bænum Múlakoti á Síðu sem er við þjóðveg 1. Hafi menn áhuga á að klifra þarna er hægt að fá gistingu á Hörgslandi, næsta bæ við.
D – Fljótshverfi
Í Fljótshverfi er töluvert af leiðum sem bíða þess að verða klifraðar.