Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Klifur um helgina
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
15. January, 2011 at 21:41 #475862308862109Participant
Við fórum 4 Ég, James, Viðar og Einar Torfi í Óríon í dag í frábærum aðstæðum. Nóg af ís og mjúkur og góður.
Hvert fóru önnur teymi?
Við sáum einhverja með hjálm á haus standa fyrir ofan ísinn á Korputorgi þegar við renndum í bæinn.Myndir frá deginum:
15. January, 2011 at 23:28 #56186Arnar JónssonParticipantKíktum í ný uppgötvuðu perlunar norðan Bröttubrekku og fórum þar Single malt on the rocks í feitum og fínum aðstæðum. Single malt og Appelísn leit líka vel út en bíður betri tíma. Nóg er af ís í þessum stórabróðir Ýrings og eitthvað fyrir alla að finna þar, byrjuendur sem lengra komna. Hláka suðvesturlandsins hefur ekki verið með mikil vandræði þarna og efast ég stórlega um að hún eigi eftir að gera eitthver ursla fyrir morgundaginn ef menn hafa áhuga að skella sér í smá bíltúr og 5-10 mín aðkomu
Myndir koma seinna.
Kv.
Arnar17. January, 2011 at 08:42 #56189Siggi TommiParticipantFór með Skabba og Eiríki Gísla í fýluferð inn í Glymsgil en í stað þess að leggjast í volæði drifum við okkur í Þrándarstaðafossana í Brynjudal, þar sem við áttum sérdeilis prýðilegan dag.
Lentum í alveg fáránlegum “spray-on” aðstæðum í tveimur leiðum, sem við ofanóðum ítrekað og varð úr því snilldar tækni- og úthaldsæfing í frábærum passlega blautum ís.
Mælum sterklega með þessu svæði. Býður upp á allt frá þægilegum leiðslu- eða ofanvaðsfossum upp í massív yfirhöng sem gjött er að naga í með tólunum. Víðast eru bunkar á brúninni til að setja upp akkeri og hægt að ganga upp og niður ef menn vilja það.Var með hausmyndavél í láni og tók eitthvað af klifrinu upp. Sjá:
http://vimeo.com/18856156NB Þetta er frumraun mín í “hero-cam” bransanum og ég kann ekkert að klippa svona vídeó en vonandi hafa menn alla vega gaman að þessu, þó ekki sé von á Óskarnum fyrir þetta.
Tók eitthvað af skotum af strákunum að neðan en þar sem linsan er svo gleið á vélinni, þá eru þeir bútar alveg vonlausir til sýninga. Skelli kyrrmyndum af þeim inn á Picasa síðuna í vikunni svo þeir fái uppreisn æru.
Eina stóra leiðin í Hvalfirði sem við sáum að væri í góðum gír var Óríon. Ýringur var ekki til, Rísandi aðeins að byrja, Stígandi ekki til, annað í Múlafjalli afar dapurt. Sáum ekki inn Eilífsdalinn fyrir þoku á leiðinni heim.
17. January, 2011 at 09:25 #561900304724629MemberVið Búbbi reyndum við gamlan félaga í Galtardal, Önundarfirði í gær. Fjórða tilraun. Komums tloks hálfa leið í mjög bröttum ís en seinni spönnin byrjar á risa fríhangandi drjóla með vonlausu móbergi á bakvið. Skrúfan var aðeins of langt fyrir neðan til að ég tæki sénsinn. Bíður betri tíma. Þá verður kertið vonandi frosið saman. Annars flottur dagur og klárlega erfiðasta klifur vetrarins hingað til. Ég teipaði Hero vélina á ísexina. Vídeóið er soldið kúl. Á eftir að smella því saman. Prófa að setja inn mynd. Sem gengur yfirleitt ekki…
17. January, 2011 at 10:32 #561922308862109ParticipantÉg og James fórum í Kjósarskarð(Grenihlíð) í gær. Klifruðum Hrynjanda 150m 3 gráðu um 35min labb frá sama slóða og ef maður fer í Áslák, Síðan vinstra megin við hana leið sem er ekki skráð 30m 4 gráðu. Enduðum síðan daginn á að klifra upp mjög flotta skoru 120m 2/3 gráðu sem við einfórum. Allur ís á svæðinu alveg frábær.
James lætur inn einhverjar myndir við tækifæri.Kv Dóri
17. January, 2011 at 10:57 #56193Gummi StParticipantVið sváfum til 11 í gær og fórum svo í óríon eftir spennandi upplýsingar á isalp.is en snerum við í testofunni þegar skollið var á svartamyrkur og slydda. Frábært klifur annars og sáum við greinilega förin eftir Dóra og félaga frá deginum áður.
17. January, 2011 at 16:46 #56194gulliParticipantArnar Jónsson wrote:
Quote:Nóg er af ís í þessum stórabróðir Ýrings og eitthvað fyrir alla að finna þar, byrjuendur sem lengra komna.Stóri bróðir Ýrings, hvernig í fjandanum færðu það út?
17. January, 2011 at 22:54 #56195James McEwanMemberFinally joined Isalp!
Here are some photos from the weekend
http://www.facebook.com/album.php?aid=2096129&id=1040752361&l=0af41b3dc7
James
18. January, 2011 at 09:47 #56196Björgvin HilmarssonParticipantYeah! About fu**ing time!
Velkominn í klúbbinn James
20. January, 2011 at 22:46 #56220Gummi StParticipantÞað eru nokkrar myndir frá helginni inná http://www.climbing.is fyrir áhugasama úr Single malt on the rocks og Óríon sleepoverinu um helgina.
23. January, 2011 at 11:18 #56236Siggi TommiParticipantNokkrar myndir frá Þrándarstaðaklifrinu hjá okkur Skabba og Eiríki Gísla komnar á
http://picasaweb.google.com/hraundrangi/RandarstaIr16Jan2011#22. February, 2011 at 09:19 #563900304724629MemberÞað er kominn mánuður frá því að bætt var í þennan þráð. Eru menn og konur dauðar úr öllum æðum???
Erum búnir að vera nokkuð virkir hér. Við Búbbi og Danny fórum á Óshlíðina um helgina og klifruðum langleiðina upp leið sem við Ívar fórum fyrst fyrir mörgum árum. Glæsileg 5gr. leið sem í þetta skiptið var of blaut til að klára. Ansi mikið hrun úr jöðrunum sem sendi mig holdvotan og grenjandi niður. Klifruðum aðra línu við hliðina í góðum alpafíling.
Erum líka búnir að finna nýtt og spennandi svæði á Ingjaldssandi með a.m.k. fimm leiðum sem voru of þunnar þegar á hólminn var komið. Klifruðum samt eina leið sem við skírðum Þorraþræl 4gr. 70 metrar.
Kallinn í efsta haftinu (70m) stuttu áður en var beilað.
Aðrar leiðir við hliðina sem oft ná saman. Fjærst sést í efsta hlutann á leiðinni Eiríki rauða (4+) sem við Eiríkur klifruðum fyrir súrkáli síðan
27. February, 2011 at 11:49 #564120304724629MemberVídjó úr Önundarfirði. Ný leið WI5 og eitthvað.
27. February, 2011 at 16:13 #564130808794749MemberSvalt vidjó og ótrúlega töff sjónarhorn!
Það lítur út fyrir að veturinn sé allur hjá ykkur fyrir vestan.27. February, 2011 at 16:13 #564140808794749MemberSvalt vidjó og ótrúlega töff sjónarhorn!
Það lítur út fyrir að veturinn sé allur hjá ykkur fyrir vestan.27. February, 2011 at 21:07 #564152308862109ParticipantVirkilega flott videó. Metnaðarfullar æfingar með herocamið.
Dóri
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.