Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › Hnappavellir uppfært
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
14. August, 2011 at 21:46 #475710503664729Participant
Mikið líf og fjör á Hnappavöllum í blíðunni nú um helgina. Auk þess sem nýjar klifurleiðir voru boltaðar og klifraðar þá tókst að ljúka smíðavinnu við Tóftina. Hún telst því kláruð og fullfrágengin. Óska klifrurum til hamingju með aðstöðuna en minni um leið á mikilvægi þess að allir fylgi húsreglunum. Með því móti mun Tóftin veita öruggt skjól um ókomin ár.
Hér eru Sædís, Berglind, Unnur og Hulda við klifur í Hádegishamri.
16. August, 2011 at 10:51 #56866Siggi TommiParticipantHvílík endemis snilld.
Alltaf að batna aðstaðan fyrir austan og ekki komið svona margar nýjar leiðir í fjölda ára. Hlakka til að fara og smakka á þessu nýjasta.
Voru annars komnar upplýsingar um nöfn, staðsetningu og erfiðleika á nýju leiðunum?16. August, 2011 at 11:54 #56867SissiModeratorÞað væri nú gaman ef menn myndu taka sig til og laga skráningu leiða hér á vefnum, búið að liggja niðri í nokkur ár sem er bagalegt þar sem þetta var ein helsta lífæð síðunnar og mikilvæg heimild.
Myndi klárlega einfalda mönnum lífið jafnt í sumar- og vetrarklifri.
16. August, 2011 at 19:02 #568680503664729ParticipantJá, staðsetning, nöfn og gráður.
Hér er samantekt sem sett er fram með fyrirvara (athugasemdir og viðbætur vel þegnar):HÁDEGISHAMAR
Frá vestri til austurs:0. Föðurland 5.13c
Valdimar Björnsson
Leið sem Kristó og Jósef boltuðu.1. Herra alheimur 5.10b
Jósef Sigurðsson og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson2. Nýfundnaland 5.5
Arnar Þór Emilsson og Berglind Aðalsteinsdóttir3. Með biblíuna í annarri 5.9 (5.10a)
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson, Manuela Magnúsdóttir og Jósef Sigurðsson4. Og byssuna í hinni 5.10a (5.10b)
Jósef Sigurðsson, Manuela Magnúsdóttir og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson5. Hey kanína 5.8
Jón Viðar Sigurðsson6. Risaeðlan 5.9
Stefán Steinar Smárason7. Hellisbúinn 5.10a
Arnar Þór Emilsson, Berglind Aðalsteinsdóttir og Sædís Ólafsdóttir8. Steinbúinn 5.10a
Berglind Aðalsteinsdóttir og Sædís ÓlafsdóttirSALTHÖFÐI
1. Strumpaland 5.3
Sigrún Björk Stefánsdóttir21. August, 2011 at 22:18 #568770503664729ParticipantValda tókst að sigra Föðurlandið og nýjar leiðir á Völlunum því orðnar 10 í sumar (sjá lista að ofan). Enn um tveir mánuðir eftir af klifurtímabilinu og því spurning hvort eitthvað bætist við.
22. August, 2011 at 10:19 #56878SkabbiParticipantHæ
Þvílík endemis snilld! Stórt hrós til allra sem að verkinu komu, sem og til Jóns Viðars og allra sem unnið hafa í Tóftinni í sumar.
Allez!
Skabbi – sem gerði ekki jack
22. August, 2011 at 20:10 #56882gulliParticipantGlæsilegt Valdi!
26. August, 2011 at 10:18 #56888Arni StefanKeymasterVel gert Valdi og miklar þakkir til allra sem stóðu að opnun nýrra leiða.
Fékk Föðurlandið gráðu? 8b+? -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.