- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
26. June, 2011 at 22:08 #475541908803629Participant
Ég, Palli Sveins og afmælisbarnið Guðjón Snær skelltum okkur upp Kerlingareld í gær.
Dagurinn hófst með ágætis óvissu þar sem skyggni var svo slæmt að við vorum varla vissir um að við værum á réttu fjalli. Svo þegar við vorum komnir í snjóskálina tók við ágætis villuráf í bröttum snjóbrekkum þar sem reglulegar snjóspýjur hrundu niður hlíðarnar – sem við sáum sjaldnast enda skyggni prýðisslæmt. Svo áttaði afmælisbarnið sig skyndilega á skýjafarinu og fundum við sem betur feril eldinn góða.
Svo tók við fínasta klifur í stórfínu bergi og fórum við sæmilega greitt í gegnum spannirnar sex, þó að sú fimmta hafi verið hvað hægförust. Á meðan við bröltum upp síðustu spönnina birti örlítið til og beið okkkar stórskemtilegt útsýni í gegnum skýin á meðan við höfðum það náðugt á tindi eldsins.
Eftir smá vesen í niðursiginu örkuðum við niður og mættum niður í kaggann hans Palla ca. 10 tímum frá brottför.
Kerlingareldurinn er klárlega stórskemmtilegt klifur og passlega harðkjarna, þó að erfiðleikastigið, tæknilega, hafi verið aðeins minna en ég bjóst við. Þó er ég frekar ánægður að hafa fengið að fljóta með reynsluboltunum tveimur enda ég ekki alveg jafn sjóaður í dótaklifrinu og kempurnar tvær.
27. June, 2011 at 14:19 #567962301823299MemberSnillingar! Tókuði ekv. myndir?
27. June, 2011 at 15:27 #56797Páll SveinssonParticipantÉg kláraði rafhlöðuna svo þetta er hálf stopullt hjá mér.
En hér er smá fyrir þá sem hafa gaman af bullinu í mér.http://www.youtube.com/watch?v=OBCs-jOXX7I
kv.Palli
27. June, 2011 at 15:59 #56798SissiModeratorÞað verður seint sagt annað en að það sé gaman að bullinu í Páli Sveinssyni. Og hrikalega er gaman hjá ykkur þrátt fyrir príma veður og topp aðstæður.
27. June, 2011 at 16:56 #56799gulliParticipantGlæsilegt, bíð spenntur eftir 2. hluta.
27. June, 2011 at 20:43 #568052109803509MemberGlæsilegt. Ég hafði gaman af þessu bulli Hlakka til að sjá seinni hluta!
27. June, 2011 at 23:03 #568060801667969MemberDularfull hljóð í þokunni! Minnir mig á lýsingu Palla þegar við hittum hann í Skaftafelli fyrir aldarfjórðungi.
Hann og Guðmundur Helgi höfðu gist í tjaldi undir austanverðum Skarðatindi. Palli lýsti hinum furðulegust hljóðum utan við tjaldið um nóttina. Þegar birta tók þá kom í ljós að allt var vaðandi í snjóflóðum fyrir utan.
Kv. Árni Alf.
P.S. Palli leiðréttir mig ef eitthvað rangt er farið með.
28. June, 2011 at 13:54 #56807Páll SveinssonParticipantÞegar þú segir það þá hljómar þetta eins og það var.
Og jú. Hljóðin i þokuni voru ekki ólík.kv.
p28. June, 2011 at 18:07 #56808ABParticipantGaman hjá ykkur!
Takk fyrir myndbandið. Hvenær fáum við 2. hluta?
AB
28. June, 2011 at 22:20 #56809Páll SveinssonParticipant29. June, 2011 at 09:15 #56810Arnar JónssonParticipantTöff video og flott leið. Gott að þið fenguð nú smá sól þarna fyrir rest.
Kv.
Arnar29. June, 2011 at 13:57 #56813Siggi TommiParticipantSérdeilis prýðileg ræma. Glæsilegt drengir.
30. June, 2011 at 10:59 #568150909862369MemberÞað er staðfest, Palli Sveins er algjörlega með þetta! Stórskemtilegt video…
SLÓ
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.