- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
16. December, 2009 at 15:10 #47526BjörkParticipant
Sælir félagar.
Veðurguðirnir hafa ekki verið hliðhollir ís- og snjóunnendum sunnanlands þessi misserin.Fyrirhuguðu jólaklifri og -skíðun verður þó ekki frestað eða aflýst.
Komið hefur upp hugmynd að halda á Sólheimajökul og lemja í ís á laugardeginum og mega þeir sem hafa áhuga á því gjarnan skrá sig inní dagskrárliðnum.
Skíðunin er þó aðeins erfiðari viðfangs, nema norðan heiða.Jólaglöggið verður þó haldið. Hinn klassíski stóladans, kálfakeppni og limbó.
Eru ekki allir til?
kv. Björk
16. December, 2009 at 15:31 #549030808794749MemberGLÖGG, Björk. Það vantar klárlega upp á frost og snjó.
Ég legg til að við mætum í skíðagræjum á glöggið og keppum í svona.16. December, 2009 at 18:21 #549042205892189MemberSjáumst fyrir norðann.
17. December, 2009 at 23:01 #54914Steinar Sig.MemberÞað er fátt um fína drætti í Sólheimajökli fyrir klifur þessa dagana. En við fórum nokkrir Flubbar tvær helgar nýlega í Gígjökul og þar má alveg æfa gott klifur. Háir og fínir veggir allt upp í yfirhangandi.
18. December, 2009 at 00:34 #54915Arnar HalldórssonModeratorÉg fór síðast sunnudag ásamt félaga mínum að klifra á Sólheimajökli í blautum aðstæðum. Fundum djúpan svelg (15-20 m) sem bauð upp á rúmlega lóðrétt og krefjandi klifur. Sáum svo enn girnilegri aðstæður á leiðinni niður rétt fyrir myrkur. Glæsilegt djúp svæði í jöklinum með mörgum krefjandi leiðum og áhugaverðum helli.
Ég mæti í ÍSALP skíði eða klifur á laugardaginn. Sólheimajökull fær mitt atkvæði.
Kv.
Arnar18. December, 2009 at 15:44 #54916KarlParticipantEr þetta ekki málið!
http://ruv.is/hekla/
Bílfært uppá Litlu Heklu og þaðan er nýsnævi á toppinn.
Þetta hefur verið ekið á óbreyttum jeppum í 60 ár…..18. December, 2009 at 18:39 #549171108755689MemberJæja
Við kýlum á þetta. Mæting klukkan 0800 á Select. Stefnan verður tekin á Sólheimajökul, nema aðrar og betri hugmyndir komi fram.
Þetta verður góðmennt með meiru.
Bragi
25. December, 2009 at 16:43 #54936Arnar HalldórssonModeratorTakk fyrir síðast!
Þetta var vel heppnað jólaklifur þrátt fyrir takmarkaðar aðstæður og slæma veðurspá. Það væri gaman að sjá myndirnar sem Arnar og Berlind tóku við tækifæri.
Ég er staddur á Eskifirði þar sem nú snjóar hressilega. Skíðaði í Svartafjalli á miðvikudaginn og aftur í dag. Oddskarðið verður svo opnað kl. 11 á morgun. Mikið fjör….mikið gaman….
Kveðja úr Austfirsku Ölpunum.
Arnar30. December, 2009 at 23:39 #54952Arnar Þór EmilssonParticipantHér kemur þetta loksins
http://arnarogberglind.smugmug.com/2009/jolaklifur/10799964_QuSvr#753022737_p5y5D
kveðja,
Arnar -
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.