Home › Forums › Umræður › Klettaklifur › Stardalsdagurinn 17. júní
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
9. June, 2009 at 12:25 #47468SkabbiParticipant
Hæ
Vildi bara minna á Stardalsdaginn í næstu viku. Þessi viðburður er hugsaður jafnt fyrir nægræðinga í dótaklifri sem þrautreynda velunnara Stardals.
Það er enginn ástæða fyrir því aðsleppa þessum áhugaverða viðburði þó að menn hafi lítið vit á dótaklifri. Ef áhugi er fyrir því er hægt að hafa kynningarkvöld um dótaklifur almennt snemma í næstu viku.
Allez!
Skabbi
9. June, 2009 at 20:16 #542300808794749Memberspennó.
verður örugglega ekki síðri stemmning en á Gerðubergsgamni nú fyrir stuttu.
[img]http://isalp.is//media/kunena/attachments/legacy/images/gerduberg_096.JPG[/img]9. June, 2009 at 22:41 #542311108755689MemberStokkvið nú til og skráið ykkur á Stardalsdaginn 17. júní!!
http://isalp.is/component/eventlist/details/1-Stardalsdagurinn.html
Stjórnin
9. June, 2009 at 22:42 #542321206882519MemberHljómar vel. Verður þetta alveg klifurvænt fyrir fólk sem hefur jafnvel ekkert klifrað með dóti? Verða einhverjar toppatryggingar?
10. June, 2009 at 09:00 #54233SkabbiParticipantHæ
Þetta er einmitt ætlað fólki sem hefur lítið eða ekkert klifrað í dóti. Við setjum upp topptryggingar, þetta er kjörinn vettvangur til að læra þá forboðnu list.
Allez!
Skabbi
15. June, 2009 at 16:32 #542462008633059MemberRakst á þessar myndir á netinu af Stardalsstemmingu fyrir aldarfjórðugi:
Eins og sjá má hér voru menn orðnir vel græjaðir, m.a. með “Friends” (vini) sem þá voru frekar nýir af nálinni (fundnir upp af Ray Jardine í kringum 1980). Er það kannski bara þjóðsaga að í “gamla daga” hefðu menn hér notast við heimatilbúnar tryggingar, t.d. rær fyrir hnetur?
Hvernig væri annars að gamlir Ísalp-félagar opnuðu (rykfallin?) myndaalbúm, skönnuðu inn nokkrar vel valdar myndir og sendu Ísalp til birtingar á nýrri og glæsilegri heimasíðu?
kv,
JLB15. June, 2009 at 18:45 #54248gulliParticipantEru rær ekki einmitt forverar hnetna?
Sem heita hnetur vegna þess að þetta þýðist svo skemmtilega úr ensku en á í raun ekkert skylt við hnetur eins og flestir þekkja þær, umvafðar súkkulaði og karamellu inní brúnu pappabréfi sem á stendur Snickers.
15. June, 2009 at 18:51 #54249hordurhalldorssonMemberÉg og félagi minn fórum um daginn og skemmtum okkur hrikalega vel. Er leiðarvísirinn ekki enn til hérna á Ísalp netinu, það er mjög gott að hafa hann með í fyrsta sinni.
Kv
Höddi15. June, 2009 at 18:57 #54250SkabbiParticipantHörður Halldórsson skrifaði:
Quote:Ég og félagi minn fórum um daginn og skemmtum okkur hrikalega vel. Er leiðarvísirinn ekki enn til hérna á Ísalp netinu, það er mjög gott að hafa hann með í fyrsta sinni.Kv
HöddiHæ
Það er unnið að því hörðum höndum að koma leiðarvísamálum í skikkanlegt horf. Að sjálfsögðu eiga allir leiðarvísar klúbbsins að vera aðgengilegir félögum hér á vefnum.
Í millitíðinni geta menn nálgast öppdeitaðan leiðarvísi að Stardal hér.
Allez!
Skabbi
15. June, 2009 at 19:13 #542511108755689MemberGuðlaugur Ingi Guðlaugsson wrote:
Quote:Eru rær ekki einmitt forverar hnetna?Sem heita hnetur vegna þess að þetta þýðist svo skemmtilega úr ensku en á í raun ekkert skylt við hnetur eins og flestir þekkja þær, umvafðar súkkulaði og karamellu inní brúnu pappabréfi sem á stendur Snickers.
hmmmm snickers…
17. June, 2009 at 19:53 #542611206882519MemberFrábær stemning fyrsta klukkutímann svo ennþá betri stemning þegar demban dundi.
Skipuleggja annan, sólríkari dag?
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.